Fnöööööh....
Mér líður eins og ég sé timbruð. Letin er að gera út af við mig, auk þess sem mataræðið hefur ekki verið með besta móti undanfarna daga.
Ég þykist auðvitað vera voða bjartsýn að ætla að vera í einhverju aðhaldi í stressmánuði dauðans, en það hefur samt gengið alveg fáránlega vel, þannig séð.
Stikka bara við léttari mjólkurvörur og reyni að halda aftur af mér í öllu nammiáti.
Ef maður er nógu andsk. þrjóskur og hefur svona góðan, útstandandi maga til að minna á afleiðingar þess að gúffa á öllu sem að kjafti kemst, þá er þetta ekkert mál.
Um jólin ætla ég meira að segja að reyna að passa mig þegar jólasósan verður löguð, auk þess sem ég mun baka smákökur sem eru ekki algjörlega löðrandi í sykri.
Svona fyrir mig, hinir mega éta það sem þeim sýnist. :)
Og talandi um jól, þá er búið að versla allar jólagjafir hér og meira að segja pakka þeim inn! Ég er svo dugleg.
En nú vil ég líka fara að sjá eitthvað af fólki í kaffi, svona áður en allir verða of busy til að meika að gera nokkuð annað en að svitna yfir innkaupakerrum í Kringlunni og eldavélum. Birta, þú manst mig þegar þú kemur frá London!
Húsasmiðjan er einmitt með útsölu á málningarfötum, splæsum bara í eina saman í blankheitunum. :)
Síðastliðnu viku hefur sko verið nóg af málum í fréttum til að tuða yfir, en ég hef ákveðið að eyða ekki óþarfa orku í það í bili. Það eru aðrir hlutir í kringum mig sem krefjast allrar minnar athygli, allavega svona þegar hátíðarnar nálgast.
Auk þess sem áramótaheitið mitt verður víst að hætta að tuða...
Gangi mér vel!
Until next....

2 Comments:
At 6:39 e.h.,
Birta said…
Engar áhyggjur, ég man sko eftir þér. Er hálf froðufellandi af tilhlökkun að fara til Íslands ;)
At 8:40 e.h.,
Maja said…
Hehehe, kannast við það! Svo þegar þú ert búin að vera hérna í viku þá skilurðu ekkert hvaða heimþrá þetta var... :/
Skrifa ummæli
<< Home