Enn um húsmæður
Jájá, eftir þessa færslu mína í gær hef ég verið óstöðvandi í dag við að gera allt sem ég get til að geta flokkast sem sæmileg húsmóðir.
Maggi minn var bara heima hjá mér í dag, þar sem hinn gaurinn var lasinn gat ég nefnilega ekki labbað með hann í leikskólann.
En það er alltaf fínt að hafa þá báða heima. Sá eldri er svo viljugur að hjálpa til hérna heima t.d. við að taka úr vélinni og hengja upp sokka.
Nei, ég er ekki með neinn barnaþrældóm á heimilinu, honum finnst þetta í alvöru gaman!
Forstofan var ryksuguð og tekið í gegn það sem hægt var, ég notaði daginn vel í að kenna Magga mínum að skrifa nafnið sitt og ræða við hann um daginn og veginn.
Og að sjálfsögðu þurfti hinn gæinn ægilega mikið knús og annað, þannig að það var mikil mamma í mér í dag.
Eftir kvöldmat var gengið frá öllu, Maggi settur í sturtu og háttaður ásamt hinum, og þegar allir voru sofnaðir ákvað ég að setjast í örlitla stund við tölvuna áður en ég kæmi mér loksins í jólabaksturinn, sem hefur beðið mín í um 3 vikur.
Flott. Maja komin í stuð um tíu-leytið.
Ég stend upp frá tölvunni og byrja að tína niður úr skápum allt sem ég gæti mögulega notað í baksturinn; kókosmjöl, síróp, valhnetukjarna, hveiti, sykur og annað sem er ómissandi í smákökugerð.
En viti menn.
Þegar ég fer að líta í uppskriftabækurnar mínar rifjaðist það upp fyrir mér, að í hádeginu voru notuð alveg fáránlega mörg egg í mat, þannig að eftir sátu ekki nema 2 stykki í ísskápnum!
Þetta var auðvitað alveg týpískt, loksins þegar ég komst í almennilegt stuð og búin að spara jólasmjörið í ísskápnum, þá hlaut þetta að koma upp.
Jæja, allt í lagi með það. Mér tókst að finna 1-2 uppskriftir þar sem þurfti ekki nema 1 egg, og ætlaði ég að láta það duga í kvöld.
Ég var rétt búin að vigta hveitið og sykurinn í þá fyrri, þegar blessuð vigtin ákvað að nú væri fyrirtaks tími til að klára rafhlöðuna.
Frábært. Og engin venjuleg batterý sem hún vill fá í sig, heldur þessi stóru sem eru aldrei til taks á heimilinu.
Þá mundi ég að nákvæmlega þessi týpa af batti er í sjónv. fjarstýringunni, þannig að ég ákvað að fá hana lánaða í nokkrar mínútur.
Og... tatamm. Þegar ég er að taka það gamla úr vigtinni, tókst mér að sjálfsögðu að slíta vírinn úr gúmmíinu sem heldur helv. batterínu á sínum stað!
Ojjjj, hvað ég varð spæld.
Að vísu var ekki mikið eftir að vigta fyrir þessar fínu kökur sem mér tókst nú að klára, bara smjörið sem er svo fínt mælt á pakkningunni og svo súkkulaðið, sem er jú alltaf 100 gr. per plata. Og kannski ekki hundrað í hættunni þó það fari aaaaðeins of mikið af því í gúmmulaðið. :)
En er þetta ekki samt alveg dæmigert? Nú er Murphy með lögmálin sín hlæjandi einhvers staðar oní jörðinni, alltaf jafn kátur þegar svona kemur upp.
Bölvaður.

1 Comments:
At 12:48 f.h.,
Nafnlaus said…
TÍPÍST, ha ha ha ha ha ha ha sé þetta eitthvað svo vel fyrir mér.
Skrifa ummæli
<< Home