Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

21 desember 2006

4 dagar til jóla

Ekki nema 4 dagar eftir.

Mér er búið að líða eins og ég sé barnið á heimilinu, ég hlakka svo hryllilega til jólanna! Kannski ekki síst vegna þess að við fjölskyldan ætlum bara að vera heima í rólegheitunum á aðfangadag, sem hefur ekki gerst í soldið langan tíma.

Síðasta sunnudag var aðventukaffið hjá Skúla bró, þar sem allir borðuðu yfir sig af smákökum, marengs og súkkulaði. Hinsvegar var þessi dagur mikil tímamót hjá okkur, því í fyrsta skipti í rúm 4 ár vorum við öll systkinin undir sama þaki í einu. :)
Ekki nóg með það, heldur voru öll 5 barnabörnin líka á svæðinu.
Verst að ég áttaði mig ekki á þessu þegar ég var á staðnum, annars hefði ég örugglega reynt að smella eins og einni mynd eða svo af skrílnum mínum.

Svo á hún Birta mín ammæli í dag, er að vísu búin að óska henni til hamingju með daginn bæði á mæspeisinu og í gegnum síma, but what the hey;
Loksins búin að ná mér í 24 árunum, ha? Til hamingju með það. :)

Og já, ég var víst að gera svona síðu fyrir strákana, addressan er
pjakkarnir.barnaland.is. Ég er svo mikill plebbi að ég setti svona password á hana, þið verðið bara að biðja um það þar. Hálf tilgangslaust að hafa password ef ég ætla svo að útvarpa það hér, ha?
En fyrir ykkur sem þekkið okkur, þá er lykilorðið gælunafnið hans Magga. :)

1 Comments:

  • At 11:12 e.h., Blogger Birta said…

    takk dúllan mín :) Æðislegt að sjá þig um daginn :)

     

Skrifa ummæli

<< Home