Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

28 nóvember 2006

Vigtin og önnur stærri áhyggjuefni

3. í vigtun var í dag, ég vigta mig alltaf alla mánudagsmorgna.
Á þessum 3 vikum hef ég misst alls 3 kg, sem ég tel nokkuð gott miðað við að þetta er bara breyting á mataræði en voða lítil hreyfing inní þessu.
Klapp fyrir mér. :)

Hins vegar var ég að horfa á mynd núna rétt í þessu, sem heitir
An Inconvient Truth, eftir Al Gore.
Myndin er byggð á fyrirlestri sem hann hefur haldið um allan heim, en mestallt efni myndarinnar er frá þessum fyrirlestri.
Ef þið hafið the slightest áhyggjur af því hvernig jörðin er að eyðast, og jafnvel ef þið eruð of sjálfselsk til að pæla nokkuð í því, þá er þessi mynd algjört must see.
Ég hef alltaf reynt að vera mjög meðvituð um þessi mál, þ.e. Global Warming, en eftir að hafa horft á þessa ræmu finnst mér ég hafa verið algjörlega ignorant hingað til. Þarna fer hann svo ótrúlega nákvæmlega í öll smáatriði, alla útreikninga sem hafa verið gerðir, öll plott sem hafa verið framin til að reyna að þagga niður í vísindamönnum, og svo mætti endalaust telja.

Þegar hann fór útí það að telja upp dæmi um áhrif þess sem við erum að gera jörðinni með allri þessari mengun, langaði mig helst til að skríða uppí hjá börnunum mínum og reyna að finna út einhverjar leiðir til að vernda þau fyrir því sem koma skal.
Eins fór ég ósjálfrátt að bölva sólinni, og í fyrsta skipti á ævinni vonaði ég að þessi vetur sem er núna myndi aldrei hætta, heldur endast fram til ársins 2050, svo heimurinn fengi kannski smátíma til að jafna sig á öllu sem hefur gengið yfir hann undanfarna áratugi.

Allavega segi ég fyrir mig; frá og með deginum í dag mun ég gera allt sem í mínu valdi stendur til að hindra þessa þróun. Og ég veit að það eru fleiri sem hugsa eins og ég, og enn fleiri tækju sig saman og kynntu sér þessa hörmung, svart á hvítu, þá er ég alveg viss um að það er enn smá möguleiki.

Úff, ég gæti pikkað inn heilu ræðurnar í kvöld og vaknað með sinaskeiðsbólgu á 3. stigi í fyrramálið, en ég ætla að láta þetta duga.

Munið bara titil myndarinnar: An Inconvient Truth....

Og já, Al Gore hefði átt að verða forseti Bandaríkjanna.

2 Comments:

  • At 12:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæ...þetta er Birgitta sem var með þér í tjarnaskóla systir hennar Karenar, ég er með Þorbjörgu í hjúkkunni og hún sýndi mér síðuna þína :)

     
  • At 7:51 e.h., Blogger Birta said…

    Til hamingju með kílóin :)

     

Skrifa ummæli

<< Home