Smá kenning
Ég var að lesa á aftonbladet (ha?), að þrátt fyrir allar þessar týpur af megrunum og heilsufæði og grenningaraðgerðum sem eru til, þá er fólk að fitna sem aldrei fyrr.
Mig grunar að ástæðan sé sú, að þeir sem aðhyllast engan veginn svona megrunarrugli, fari algjörlega í hina áttina og "fitni viljandi", bara til að láta í ljós andúð sína á fólki sem hugsar aðeins of mikið um óhóf í sykurneyslu, skyndibitamat og öllu því sem allir vita að er óhollt.
Annað dæmi, en kannski öllu alvarlegra og heimskulegra; Nú eru kynsjúkdómar búnir að vera mikil ógn við mannkynið í tugi ára. Sprengjan sprakk í 80´s þegar AIDS vesenið kom upp. Samt, SAMT er endalaust af fólki sem finnst þetta vera orðið svo mikið áreiti að maður verði að stunda ábyrgt kynlíf, að það fer af stað niðrí bæ allar helgar til að leita sér að skemmtilegum næturfélaga, bara til að storka "the statistics".
Áróður er alls ekki alltaf af hinu góða. Í þessum tveimur dæmum er soldið greinilegt hvað fólk verður fljótt þreytt á því að heyra hvað sé hollt, öruggt og lífsnauðsynlegt og fer bókstaflega að gefa skít í það.
Þótt ég hafi eitthvað verið að rausa um daginn að það þyrfti að vera alvöru vitundarvakning hvað varðar Global Warming, þá verð ég samt líka pínu skelkuð þegar ég sé að nú eru skyndilega netdagblöð byrjuð með átak til að draga úr þessum hryllingi sem vofir yfir okkur út af gróðurhúsaáhrifum. Hver veit nema þetta fari eins og allt hitt?
Skyndilega fari allir að fá sér ísskáp í hvert herbergi, kaupa sterkustu perur á markaðnum í náttlampana og hætti að láta smyrja vélarnar á bílunum sínum?
Það er alveg afskaplega erfitt að tala um fyrir fólki á skynsaman hátt, þannig að allir hlusti og taki mark á því sem er verið að koma á framfæri.
Ég er t.d. svo mikil blaðurskjóða, að ef ég fer að ræða eitthvað af mínum fjölmörgu issue-um við einhvern í kringum mig, þá verður mér svo fljótt allt of heitt í hamsi, að öll eyru í 3 km radíus eru farin að geispa eftir stutta stund.
Kannski er ágætt þá að ég sé með þessa bloggsíðu til að fá útrás, hver sem les þetta getur þá bara hætt því þegar honum sýnist án þess að ég móðgist. ;)

4 Comments:
At 4:16 e.h.,
Birta said…
Ég er sammála þér með þennan megrunaráróður. Og bara áróður yfir höfuð. Margir (eins og ég) eru uppreisnarseggir by nature og vilja því ekki fylgja þessum áróðri að "allir þurfa að vera svona eða hins veginn", og berjast því gegn því.
Sad but true. Human nature, eh?
At 3:42 e.h.,
Nafnlaus said…
það er óhollt að reykja-átak fer einmitt í taugarnar á mér.. ábyggilega bara af því að ég reyki. mér finnst reyndar sniðugar auglýsingar sem virkilega sýna ógeðið! sýna kransæðastíflu og grátt krabbameinslunga. bara svona upp á yngri kynslóðir að gera.
það er líka alveg út í hött að vera alltaf með einhverjar megranir á boðstólnum. heilsusamlegra líferni ætti frekar að vera takmarkið. hverjum er ekki sama hvort jón og gunna séu með stóran rass. þau líta hvort eð er betur út og grennast væntanlega e-ð ef þau borða hollan mat, borða reglulega og hreyfa sig í hófi.
en þetta með kynsjúkdómana skil ég ekki. ég frétti af strák um daginn sem var með mér í fb og hann á að hafa fengið einhverja herpesveiru sem hefur ekki áður fundist hér á fróni. þetta er svo ógeðslega subbulegt að mér sortnar fyrir augum! farðu í adam og evu megastore og haltu prívatinu heilbrigðu!
At 3:42 e.h.,
Nafnlaus said…
já þetta var ég:)
At 9:37 e.h.,
Maja said…
Hæ Heiðdís! ;)
En já, þessir kynsjúkdómar eru einmitt orðnir svo dreifðir að þeir mixast einhvern veginn allir hver við annan og útkoman verður bara eitthvað nýtt ógeð...
Smekklegt.
Skrifa ummæli
<< Home