Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

16 nóvember 2006

Kaaaalt....

Ójá, það er sko kalt hjá okkur á Nesinu þessa dagana.
Rokið var þvílíkt hérna í gærkvöldi, að þótt allir gluggar í stofunni væru harðlokaðir voru gluggatjöldin á góðri hreyfingu!
Ég hata vetur...

Ég er svona alveg að fara að komast í jólafíling, sem mun örugglega aukast til muna um leið og ég fæ séns á að taka almennilega til í þessari íbúð okkar.
Það er eins gott að maður er ekki að fá mikið af gestum, ég held, svei mér, að ástandið hafi aldrei verið eins slæmt...
Þetta fylgir því víst að vera með skríðandi unga sem má ekki líta af, maður gerir voða lítið á meðan hann er á ferðinni. :)
En, einhvern tímann kemur betri tíð með sóp í haga.

Þangað til það gerist hangi ég bara á netinu, sem hefur víst fengið titilinn
"Tímaþjófur aldarinnar".

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home