Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

06 nóvember 2006

Iss bara

Ég fékk svona invitation frá Möggu í Tagged, sem er svona hálfgert MySpace dæmi...
Ætlaði svo að vera voða sniðug og prófa þetta, en þá kom í ljós að það sjást engir íslenskir stafir á síðunni..!
Soldið beyglað, ég hélt nú að internetið og þessar heimasíður væru aðeins þróaðri en þetta.

Eins og ég hef nú aldrei komist inní þennan fíling, þá var ég alveg fáránlega nálægt að bara sign-up á MySpace, bara svona uppá djókið.
Sé til hvað mér leiðist á morgun, kannski.

Annars var Kolaportið tekið með trompi um helgina, fékk þennan líka fína Levi´s gallajakka á 500 kall (I know, I´m so two centuries ago..), eitthvað svona massabelti fyrir 300 kall plús eitthvað smotterí handa strákunum.
Fínt að fara í Kolaportið, ég nota það sem svona umbun fyrir Magga minn ef hann hefur staðið sig vel með eitt og annað vikuna á undan.

Ég sem var svo ánægð með að hafa fundið mér gallajakka sem mig hafði langað í lengi, kom heim eftir smá þrif í gær og þá var þangað komin alveg svaka flott úlpa sem tengdamamma gaf mér. ;) Ég á ekki að vera yfirhafnalaus í vetur, eins og ég er nú annars oftast...

Jamm og já... Ekkert heitt í fréttum í dag, allavega ekkert sem ég nenni að fara að bölva yfir neitt, eigum við ekki bara að segja þetta gott af léttleika að sinni, svona einu sinni? ;)

3 Comments:

  • At 11:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    haha ég var ekkert farin að skoða þetta tagged neitt að ráði, en ég nenni nú varla að vera með þetta ef að ísl stafir virka ekki :/
    En já það er alltaf gaman að kíkja í kolaportið, til hamingju með jakkann og úlpuna :Þ

     
  • At 8:11 e.h., Blogger Birta said…

    Gallajakkar fara aldrei úr tísku góða ;)

     
  • At 9:46 e.h., Blogger Maja said…

    Hehe, rétt er það. ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home