Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

28 nóvember 2006

*HÓSTHÓST*

Þar sem ég er orðin eitthvað lasnari en í síðustu HÓST-færslunni minni, fannst mér ágætlega við hæfi að tvöfalda þann titil og setja útkomuna hingað.

Ég er búin að vera að bíða eftir síðan í gær að fá loksins að sjá hvernig lungun í mér líta út í alvörunni. Hóstinn og tremminn hér á heimilinu hefur verið þvílíkur, að oft held ég að bráðum verði opnað hér líffærasafn þegar allir hafa gubbað uppúr sér innyflunum.
Sjálf hef ég verið bryðjandi Íbúfen síðustu 2 daga, þó það sé ekki nema bara til að geta staðið í lappirnar. Það þykir víst ekki til fyrirmyndar að liggja í rúminu allan daginn þegar maður er með einn tæplega 8 mánaða skríðandi um allt, og annan 4 ára sem heldur að hinn sé einhvers konar leikfang.
Lítið um veikindafrí hér semsé.

Svo er eiginlega alveg merkilegt hvað hausinn á manni steikist í svona ástandi; áðan stóð ég sjálfa mig að því að vera að spá í hvernig ég ætti að kynna mig fyrir Katie Holmes ef hún og Cruise-inn myndu einhvern tímann láta sjá sig í Kolaportinu!
Þvílíkt rugl, enda gat ég varla annað en hlegið upphátt þegar ég rankaði við mér!

Það er greinilegt að það er einhver jólafílingur kominn í fjölskylduna mína.
Nú er systir mín að bjóða okkur öllum í aðventukaffi til sín á sunnudaginn (með smákökum og alles), ég er búin að liggja yfir svona dótabúðarbæklingum í allt kvöld og Maggi minn er farinn að spá alveg óhugnanlega mikið í piparkökum núna undanfarið.
Skyldi hann vera að hinta á að ég eigi að fara að baka eitthvað..?
Og by the way, miðað við hvað andlitið á honum ljómar þegar hann skoðar bæklinginn frá Leikbæ, þá held ég að hann sé ekkert endilega að fara fram á mjúka pakka þessi jólin. ;)

Úff púff, svitinn af mér er farinn að leka á R, T og P á lyklaborðinu, best að hætta áður en fleiri stafir drukkna í Majuveikindum...

Bull.

3 Comments:

  • At 3:38 e.h., Blogger Birta said…

    Hahaha! Hversu oft hefur maður staðið sjálfa sig að því að hugsa um eitthvað svona fáránlegt :D

     
  • At 12:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hahahah:D þú ert svo snilldargóður penni:D

     
  • At 12:45 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hehe, já ég held að það sé komnn tími á að þú farir að baka, fyrst að ég ætla ekki að gera það :Þ

     

Skrifa ummæli

<< Home