Ég man hvar ég var þegar....
1. Fyrstu fréttir bárust af því að flugvélar hefðu flogið inn í WTC.
Var í félagsfræðitíma hjá honum Erlingi í FB þegar einhverjir krakkar bönkuðu uppá og sögðust hafa fréttir sem þau voru nokkuð viss um að hann vildi heyra. Fyrst kom alveg afskaplega skrýtinn svipur á manninn, síðan var okkur öllum gefið frí í tímanum til að fara inní matsal að horfa á CNN. Ég horfði í kortér og fór síðan heim í Grafarvoginn og glápti á fréttarásirnar fram að kvöldmat....
2. Bandaríkin gerðu innrás í Afghanistan.
Austurstræti, ys og læti, á rúntinum með Birtu í fína Coltinum mínum. Til að vera nákvæm þá vorum við fyrir utan Subway og KB banka þegar pabbi gamli hringdi og sagði að það væri byrjað stríð. Ég sagði Birtu þetta, og við þögðum í dágóða stund...
3. Þegar styttan af Saddam Hussein í Bagdad var felld.
Við hjónin horfðum á heillanga útsendingu í sænska ríkissjónvarpinu, allt frá því verið var að setja kaðla utan um styttuna og allt þar til þeim tókst að fella hana. Mjög spes moment.
Ég man því miður ekki alveg hvar ég var þegar Saddaminn fannst í þessari holu í jörðinni, ef einhver er með dagsetninguna þá er örugglega hægt að giska á það.
Nú er bara spurningin; hvar verðum við stödd þegar kallinn verður tekinn af lífi?
Eða þegar Osama finnst dauður í einhverri grafhvelfingu með bros á vör?
Eða þegar George W. Bush verður skyndilega ekki lengur forseti Bandaríkjanna?
Munið að punkta þetta hjá ykkur þegar þar að kemur. ;)

3 Comments:
At 2:33 f.h.,
Birta said…
Vá, ég mundi ekkert eftir þessu með Afganistan fyrr en ég las þetta. Gaman að grafa upp svona hluti :)
At 10:03 f.h.,
Anna Kristjánsdóttir said…
Hvar vartu þegar Kennedy eldri var myrtur?
At 11:29 e.h.,
Maja said…
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Skrifa ummæli
<< Home