Þá er það opinbert...
Ég er komin með MySpace síðu.
Var nú ekkert að tala mikið um það til að byrja með, vildi ekki særa aumingja bloggsíðuna mína...
En nú er ég búin að fikta nóg í henni og aðeins farin að læra á þetta, þannig að þessi síða verður bara að fyrirgefa mér það. :)
Ég er nú svo mikill lúði að ég á örugglega ekkert eftir að loka blogginu mínu, ég er nú búin að halda þessu uppi í 3-4 ár! Væri synd að henda bara öllu út um gluggann. :)
Allavega slóðin er , fyrir þá sem hafa áhuga.
Annars er það helst að frétta héðan að ég er búin að missa samtals 2 kg á 2 vikum, sem mér finnst bara nokkuð gott. :)
Ef ég kæmist í einhverja meiri hreyfingu yrði kílóin örugglega fljótari að fjúka af mér. Þó það hafi nú verið smá torfæra á mér síðustu 2 daga, en á meðan ég labbaði með Magga minn í leikskólann plægði ég aðeins gangstéttirnar í leiðinni með barnavagninum! Engin smá líkamsrækt, maður..
Eftir að ég fór að borða aðeins heilsusamlegra fæði finn ég alveg svona stigavaxandi mun á orkunni í mér. Vandamálið er bara að mig vantar tækifæri til að fá útrás fyrir eitthvað af þessari aukaorku!
Ég get ekki bara tekið ryksugu og með því í hönd hvenær sem mér dettur í hug, því ég þarf jú sífellt að vera að hafa auga með litla skriðskrímslinu mínu.
Hint hint, vill einhver koma og passa? ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home