Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

14 október 2006

Maja mælir með....

* Thai Green Curry úr kjötborði Nóatúns
* Stubbum frá Nóa
* Egils Pilsner, sérstaklega á notalegu laugardagskvöldi.

Þó ég verði auðveldlega fúl yfir ýmsu, þá þarf yfirleitt ekki mikið til að sleikja úr mér fýluna.

Dagurinn í dag hefur verið alveg einstaklega rólegur, þar sem eldri sonurinn skrapp í sumarbústað með ömmu sinni. Heyrði einmitt í þeim í hádeginu, það var nú ekki meira rok hjá þeim en svo að þau borðuðu hádegismat útá palli og hann var búinn að vera útí læk að busla svona hérumbil síðan hann vaknaði..! Alls staðar búið að spá vitlausu veðri í dag, soldið fyndið...
En ég verð að viðurkenna að það hefur verið ansi tómlegt í kotinu síðan hann fór í gær. Auðvitað er alveg frábært að geta bara notið þess í botn að nostra við litla krúttið á meðan, en samt...

Ég meira að segja gekk svo langt í þessum söknuði mínum í morgun, að ég kveikti á barnatímanum á slaginu 8, bara svona til að hafa eitthvað eins og vanalega. ;)
En það verður bara frábært að fá hann heim aftur á morgun. Einu sinni fór mamma svona með hann í bústaðinn, og þá var hann alveg frá föstudegi fram á þriðjudag..!
Það munaði engu að ég hefði farið af stað á sunnudeginum til að sækja hann, en ég hélt aftur af mér.

Kannski ég ætti að bæta við þennan lista minn þarna efst...

Maja mælir með:

* Barneignum. :)

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home