Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

10 október 2006

Ég elska stupid stafsetningarvillur...

Ef þið farið á leit.is, þá er svona auglýsing frá einhverju sem heitir heimanam.is.
Það koma svona textar eins og "Byrjaðu strax í dag!" og "Lærðu þegar þér sýnist!" eða eitthvað álíka í auglýsingunni... Svo kom það besta, "Mentun er fjárfesting!"...!
Ekkert fyndnara en menntastofnanir sem auglýsa sig og kunna ekki einu sinni
almennilega réttritun.
Og svona í lokin; getur einhver sagt þessari flugu sem er að fljúga í andlitinu á mér að það er kominn október?!

4 Comments:

  • At 9:32 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er búið að láta þessa flugu vita af gróðurhúsaáhrifunum og hitaaukningunni á landinu svo....þú verður bara að taka henni vel og bjóða hana velkomna

     
  • At 10:37 f.h., Blogger Maja said…

    Ég var nú að spá í að segja henni að það væri að opna nýr fiskmarkaður í N-Kóreu, þá held ég að málinu sé reddað.

     
  • At 7:11 e.h., Blogger Birta said…

    Hahahaha!! Vá hvað ég hló!! "Mentun!". Segðu þessari flugu bara að koma til London. Hérna er mollulegt, svona 15 stiga hiti. Múhahahaha!!!

     
  • At 10:05 e.h., Blogger Maja said…

    ef hún lætur ekki gabba sig með Kóreu málið, þá efast ég um að hún nenni til Lundúna. Hún er búin að kalla á mannafla, sáum hrossaflugu fyrir utan áðan..!

     

Skrifa ummæli

<< Home