Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

19 ágúst 2006

Ómenning í Reykjavík

Í dag fann ég virkilega hvað ég á ekki heima í þessari bölvuðu borg eða nágrenni.
Aldrei slíku vant ákvað ég að það væri góð hugmynd að fara með krílin í Kolaportið, þó það væri ekki nema bara til að skoða okkur um. Ágætis tilbreyting frá því að vera heima og reyna að hafa ofan af fyrir eldri drengnum þar.
Þar sem ég er svo "heppin" að búa útá Nesi, var þessi áætlun mín gjörsamlega ógerleg.
Eftir að hafa eytt örugglega hálftíma í að klæða liðið í fötin, skrúbba sjálfa mig og klöngrast með vagninn í skottið á bílnum, keyrði ég af stað, ofsa ánægð með sjálfa mig.
Var til að byrja með soldið hissa á hvað það var óvenju mikið af skokkurum að spretta úr spori við sjóinn, en um leið og ég nálgaðist Hringbrautina mundi ég það.
Það er helv. Menningarnótt í dag.
Við hringtorgið sem ég er vön að fara til að komast í bæinn stóðu einhverjir unglingar að stýra umferðinni, svo það kæmi nú ekki einhver mótmælandi að þessari vitleysu og keyrði hlaupafíflin niður. Og að sjálfsögðu var gatan mín lokuð.
Þannig að ég fór heilan hring á þessu torgi, strax orðin kvíðin því sem verða skyldi þegar ég færi að nálgast miðbæinn.
Og viti menn, þetta var sko bara byrjunin. Stóra hringtorgið við Suðurgötu var bara eitt stórt kaos, þar sem Suðurgatan var lokuð. Rúmlega einn hringur keyrður á því torgi.
Þá var stefnan tekin í áttina að flugvellinum, var ofsa bjartsýn á að komast Sóleyjargötuna, þannig að ég kæmist kannski að Kolaportinu með því að keyra meðfram tjörninni.
Nei nei, Sóleyjargatan líka lokuð.
Þarna var ég orðin slatta pirruð, því ég hef algjöra óbeit á hvað það þarf alltaf að leggja allan miðbæinn undir þessar "skemmtanir", sem eru orðnar æ tilgangslausari og asnalegri.
En þar sem það er talað svo viðbjóðslega mikið um þetta í öllum miðlum og matvöruverslunum og hvert sem maður fer, þá auðvitað þorir múgurinn ekki öðru en að hrúgast einhvern veginn niðrí bæ, án þess að svo mikið sem spá í hvað er að gerast í menningunni í dag.
Það verða bara ALLIR að fara.
Ég keyrði einhverja hringavitleysu þarna í Þingholtunum, því að sjálfsögðu eru bara þrengstu götur bæjarins opnar fyrir bílaumferð. Bara svona til að gera þetta skemmtilegra.
Á þessum tímapunkti var ég farin að hugsa einhverjir afsakanir fyrir aumingja drenginn, sem sat svo spenntur afturí bílnum yfir að vera að fara í svona fína Kolaportsferð með mömmu sinni og litla bróður. Sá litli var auðvitað steinsofnaður, hann er svo heppinn að hafa ekki hugmynd um hvað fólk er skelfilega vitlaust og um hvað allt fössið er.
Einhvern veginn, ég veit ekki hvernig, tókst mér að burra í Aktu Taktu við Skúlagötu, þar sem ég keypti bara 2 ísa í sárabætur fyrir þennan misheppnaða bíltúr.
Og Sæbrautin var lokuð, þannig að ég þurfti að troðast með öllum hinum 78.000 bílunum uppá Miklubraut til að komast heim. Ég hélt nú að ég væri sloppin þegar ég komst aftur á Hringbrautina, en neeeei. Þar var fólki vinsamlegast bent á einhverja hjáleið til að komast útá Nes. Loksins, loksins komst ég heim, dauðfegin að vera laus úr þessu rugli í miðbænum.
Og þá var öllu gáfulegri ákvörðun tekin; hér verður ekki farið aftur út úr húsi í dag.

OK. Mér finnst ekkert að því að það séu haldnar svona uppákomur. Þar sem ég hef nákvæmlega engan áhuga á að troða mér niðrí bæ á 17. júní, Gay Pride eða Sjómannadaginn, þá kemur mér þetta ekkert við hvað fólk gerir.
En þegar liði eins og mér, sem tekur engan þátt í þessu, er hérumbil aftrað frá því að taka bíltúr niðrí bæ með börnin með því að loka öllum götum út og suður, þá er mér nóg boðið.
Ég vil ekki þurfa að lúta í lægra haldi fyrir einhverjum vitleysingum sem verða að taka þátt í einhverju stupid maraþoni, bara af því allir hinir eru að því. Og af því þeim sem mæta á svona (ó)fögnuð er bent á að nota ekki einkabílinn heldur taka bara strætó, þá er í leiðinni verið að segja öllum hinum að gera það sama, án þess að þeir átti sig á því kannski.
Er ekki kominn tími til að það fari að sjást the downsides við þessa fagnaði, í staðinn fyrir að vera alltaf endalaust að tala um hvað þetta sé nú æðislegt, hvað þetta er mikil framför hjá Reykjavíkurborg að geta staðið undir þessu, hvað þetta er nú frábært fyrir fjölskylduna o.s.frv.?

Þetta er allavega mín skoðun, ég verð ekkert fúl þó ég verði kölluð félagsskítur eða eitthvað álíka fyrir hana.

1 Comments:

  • At 11:13 e.h., Blogger Birta said…

    Ég get nú sagt þér smá sögu. Ég þurfti að sækja bílinn niður í bæ til að komast upp í Breiðholt í sjötugs afmæli. Beið fyrst í 40 mínútur eftir strætó, en ég hafði lesið á bus.is að það yrðu auka ferðir með strætó, svona til að létta fyrir fólki. Ég varð ekki vör við neinn strætó svo ég hringdi í Strætó bs. þar sem strætóskýlið mitt var fullt af fólki. Enginn svaraði.. svo ég ákvað því að labba niður í bæ þar sem það myndi "bara" taka mig hálftíma.
    Ég labbaði meðfram Miklubrautinni og sá aldrei strætó þær tuttugu mínútur sem ég labbaði þá götu. Loksins þegar ég kom að bílnum þá var gígantísk umferð. Ég var ekkert að velta mér uppúr því, en fattaði svo af hverju öll þessi umferð var. Fokkinn miðbærinn var allur lokaður!! Ég hringsólaði í heilar tuttugu mínútur áður en ég gat þröngvað mér einhverja götu og komið mér heim.
    Djöfull var ég pirruð. Mér dettur ekki í hug að fara að djamma í kvöld. Fór í fyrra og ég komst ekki inn á neina staði því allt var troðfullt, og grenjandi rigning úti í þokkabót. Pfft.

     

Skrifa ummæli

<< Home