Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

12 júlí 2006

Blessuð blíðan...

Ef sólin asnast til að skína eitthvað, þá þarf að vera rok líka.
Ef það er logn og fínt, þá er yfirleitt rigning og/eða brjálæðislega þungskýjað.
What´s up with that??
Ég er svo mikil "veðurskræfa" að ég meika ekki að labba með stóra gæjann á róló...
Veit líka að það er ekkert gaman fyrir hann að leika sér úti í svona óblíðu, þannig að við látum duga að leika hérna fyrir utan með alla trukkana og skóflurnar.

Hér var vakað yfir Rockstar í gærkvöldi, og pjakkurinn hann Magni kom bara þónokkuð á óvart. Hann á nú örugglega ekki eftir að vera í "final three" eða neitt þannig, en ég spái því að hann muni komast lengra en margir þorðu að vona.
Ég er strax komin með mitt uppáhald, sem er að sjálfsögðu stelpa. ;)
Svo eru það bara úrslitin í kvöld.... Það eru 3 nöfn sem koma strax í hugann á mér...
Nei vá, allavega 5 nöfn..!
Já, það eru ansi margir glataðir þarna.
Ég kíkti aðeins á heimasíðuna fyrir þáttinn, og á spjallsíðunum er fólk að gefa komment á liðið.
Magni er aldrei neðar en í 6. sæti, þannig að ég efa að hann muni detta útí kvöld.
Og já, það eru líka kanar sem skrifa um hann. ;)

5 Comments:

  • At 3:32 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hmmm, hver er síðan fyrir þessa keppni, væri til í að sjá hvað kanarnir segja um hann ??

     
  • At 7:06 e.h., Blogger Maja said…

    rockstar.msn.com. ;)

     
  • At 8:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hæ kemur ekki ný færsla bráðum skvísa?? Love Hildur og Jake

     
  • At 6:19 e.h., Blogger Birta said…

    Bloggaðu bráðum dúllan mín :)

     
  • At 1:40 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég er með síðu á myspace. ég ætla að fara í pásu á folk.is þar sem að fólk sem ég vil ekki að sé að lesa þetta, er að lesa það. það sem ég sagði frá var þúsundsinnum ópersónulegra en það sem DV sagði frá og það er bara mín skoðun að finnast allt í lagi í svona tilfellum að nafngreina fólk. sérstaklega þar sem blöðin eru fyrri til. en allavega.. vegna hótanna út frá þessu þá er ég með blogg á myspace þar til ég opna nýja bloggsíðu. það er www.myspace.com/hekla1983

     

Skrifa ummæli

<< Home