Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

10 júní 2006

Vinnum rusl úr náttúrunni!

Ég hef nú ekki haft mikið álit á liðinu á bakvið DV undanfarið, en nú finnst mér þeir vera að slá öll met.

Nýjasta auglýsingin frá þeim byrjar á að sýnt er lítið, saklaust tré, sem er greinilega nýbúið að planta niður. Inná talar kvenmannsrödd fyrir títluna, sem er með yfirlýsingar um hvað hún ætlar að verða obboslega merkileg í framtíðinni, láta taka eftir sér og eitthvað bull.
Svo koma nokkrar svona hraðar klippur í röð, þar sem eru sýnd niðurhoggin tré og inní trjábolina og allaveganna, sem fyrir mér er eins og að horfa á myndband úr sláturhúsi.
Og viti menn, útkoman úr öllum þessum "blóðsúthellingum" verður svo DV!

Þessi auglýsing lét mig sko ekki fá þá tilfinningu að ég yrði að hlaupa í næstu sjoppu og kaupa helv. blaðið, heldur var þetta bara til að minna mann á hvað það er verið að eyða heilu skógunum í mikið rusl og óþarfa.
Og ef ég er sú eina sem auglýsingin hefur þessi áhrif á, þá held ég að það þurfi eitthvað að fara að banka í fólk....

En nóg um græningja statement.
Ég er að hlusta og horfa með öðru eyra og auga á The Making of The Dark Side of the Moon á Sirkus.
Þetta var líka sýnt í gær, en þá sat ég límd yfir Bachelorette með múttu.
Og á Skjá1 var verið að sýna mynd um Janis Joplin, sem ég bara rétt sá síðasta slefið af.
Ah, the jolly good 60´s and 70´s...!

Nú erum við hjónin einmitt nú þegar búin að missa af 2 tónleikum sem hefði verið ómissandi að sjá, og þeir 3ju verða á mánudaginn.
Ian Anderson, Zappa plays Zappa og Roger Waters.
Rumor has it að Waters hafi reynt að fá Gilmore til að spila með sér á eitthvað af tónleikum í þessum Evróputúr.
Ef ég sé í blöðunum daginn eftir tónleikana hér, að hann hafi látið sjá sig í Egilshöllinni, þá stekk ég í sjóinn.
Sá þá spila saman á Live8 (on tv, of course), og ég algjörlega frelsaðist.
Well, svona er lífið. Maður fær ekki allt sem maður vill.
Bætum okkur þetta upp með því að ná í Live8 tónleikana.

1 Comments:

  • At 9:54 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá hvað ég er sammála þér með þessa auglýsingu... langar bara alls ekki að fara út að kaupa blaðið eftir að ég sá hana! Mjög undarleg aðferð til að auglýsa blað.

     

Skrifa ummæli

<< Home