Ja hérna hér.
Mr. Neversmile tilkynnti á Þingvöllum í kvöld að hann ætlaði að láta sig hverfa frá stjórnmálum, bæði sem formaður Framsóknarflokks og sem forsætisráðherra.
Svei mér ef það glitti ekki bara í smá glott á meðan hann hélt ræðuna, það var þá þetta sem þurfti til!
Ég held að ég geti verið sátt við að Haarde verði forsætisráðherra á eftir honum.
Hann er sá eini af þessum ráðherrum sem er ekki of góður til að láta sjá sig í Kolaportinu á svona normal degi. Segir ansi margt um manninn, þykir mér.
Hann sendi mömmu líka samúðarskeyti þegar pabbi dó. Fínn kall.
Í öllum mínum barnaskap dettur mér í hug að Halldór hafi ekki þolað við á Alþingi eftir að Davíð lét sig hverfa. Þeir voru nú alltaf eins og klipptir út úr rassgatinu hver á öðrum, svo miklir vinir voru þeir.
Svo miklir vinir, að þeim tókst að koma hérumbil allri þjóðinni upp á móti sér, þegar þeir tilkynntu Busharanum um opinberan stuðning Íslands í allri þessari innrásarvitleysu.
Skyldu þeir vera með móral út af því?
Nú heyrist einmitt endalaust af einhverjum bölvuðum fjöldamorðum í Írak , og það eru sko ekki einhverjir skæruliðar sem standa á bak við nærri öll, heldur eru Kanafíflin orðnir alveg sömu krimmarnir og hryðjuverkamennirnir sem þeir eiga að vera að "útrýma".
Og by the way, þið sem hafið ekki séð Fahrenheit 911, nú er sko rétti tíminn til að tékka á henni.
En að öðrum fallegri hlutum. ;)
Nýjasti engillinn á heimilinu dafnar sem aldrei fyrr, er hlæjandi allan daginn, frá því hann vaknar og alveg þar til hann fer að sofa. Það er þá helst að hann láti eitthvað aðeins heyra í sér ef ég er ekki alveg nógu snögg að skella ýmist brjósti eða pela uppí hann, en það er nú eðlilegt.
Ég hélt að svona börn væru bara til í auglýsingum, en svo er víst greinilega ekki.
Sá eldri er farinn að sýna ögn meiri afbrýðissemistakta, sem eiga stundum til að vera allt að því hættulegir. Við tökum því af ísköldu æðruleysi, og ég bíð bara eftir að þessi blessaði gæsluvöllur hérna á Nesinu verði starfræktur í mánuðinum.
Þá held ég að allir verði glaðir, ekki síst hann.
Hann fékk einmitt þetta fína reiðhjól að gjöf um daginn, og nú reynum við að nota allan tíma sem hægt er til að leyfa honum að spreyta sig á græjunni.
Pedalarnir eru svona ekki alveg orðnir vinir hans ennþá, enda er þetta kannski soldið stíft fyrir gæja sem hefur ekki einu sinni átt þríhjól. ;)
Og í kvöld mun ég leggjast á bæn og vona að það verði gott veður á morgun, svo maður geti farið að ganga af sér eitthvað af þessu skvapi sem hefur verið að safnast á kroppinn.

4 Comments:
At 11:55 e.h.,
Nafnlaus said…
Mín bara orðin pólitísk ;)
At 11:37 e.h.,
Nafnlaus said…
hahaha mikið var gaman að lesa þennan pistil um halldór ;) ég var að segja við mömmu í morgun að það hlaut nú að koma að því að litli hundurinn hans Dabba mundi gefast upp :)
At 1:13 e.h.,
Maja said…
Hahaha, Halli hundur!
Er það þá Dabbi drottnari?
Nei, ég segi svona...
At 11:56 e.h.,
Birta said…
Dabbi kóngur Maja, Dabbi kóngur ;)
Skrifa ummæli
<< Home