Áfram Ísland!
Í fyrsta skipti á ævinni fékk ég gæsahúð yfir handboltaleik í dag.
Þessi Ísland-Svíþjóð leikur var alveg stórkostlegur... þó ég hafi nú ekki séð nema síðustu 5 mínútur af fyrri hálfleik og eitthvað álíka af seinni...
En eru það ekki einmitt mest spennandi mínúturnar?
Að ég tali ekki um stemmninguna sem var í Höllinni, shit!
Ekkert skrýtið að Svíarnir fengu nettan sviðsskrekk!
Þó ég sé algjör Svíap**a, þá hélt ég algjörlega með okkar mönnum, Stefánssyni og co.
Ekki síst vegna þess að ég veit hvað Svíar eru alltaf búnir að vinna alla leiki og allt, löngu áður en fjörið hefst. Enda hef ég aldrei séð eins litla sportumfjöllun á aftonbladet.se eins og í kvöld. ;) Mér finnst það skenntilegt.
En það var líka 17.júní í dag...
Byrjaði nú daginn á að vakna kl. 6:30, ásamt tveimur afskaplega myndarlegum, litlum mönnum. Sá eldri hefur nefnilega verið færður niður í svefnherbergi til okkar, og það er voðalega notalegt að hafa allt liðið hjá sér. Rauk svo í þrif útí bæ strax fyrir hádegi, og á meðan var tengdamamma svo góð að fara með gæjann í strætóferð sem endaði í Hljómskálagarðinum.
Brúðubíll og blöðrur, gleði og aftur gleði.
Kvöldið hefur farið í að skoða eitt.... nei, ekki eitt, heldur bara frábærasta project sem ég hef heyrt um. More on that later. Endilega verið forvitin, ég veit að það eru mjög margir sem munu vilja taka þátt í þessu.
En nú er mér eiginlega orðið óglatt af þreytu....
Ætla að fara að sofa af mér þrifasvitann.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home