Mjólkurvandi
Nú er víst ekki um annað að ræða fyrir mig en að gefa nýja gæjanum pela í ábót við hitt.
Fór með hann í skoðun í fyrradag, og þar kom í ljós að hann er eiginlega ekkert að þyngjast, heldur hefur eiginlega bara staðið í stað, en lengist samt alveg voðalega.
Sem þýðir, að þrátt fyrir mjólkuraukandi te og endalaust vatnsþamb, er ég ekki að mjólka nóg.
Ég fór alveg í flækju til að byrja með, og vildi ekki ræða þetta við nokkurn mann, en eftir að ég fór að sjá hvað hann var rosalega saddur og vær eftir pelagjöf, þá róaðist ég aðeins.
Auðvitað skiptir það öllu máli að barnið sé satt og ánægt, hvaðan sem það kemur síðan.
Og ég er heldur ekkert verri eða óhæfari mamma þó svona sé. Ég veit að það eru margar sem glíma við svona leiðindavanda, og einhvern veginn ráða þær í gegnum þetta.
Nú finnst kannski einhverjum ég vera voða persónuleg að koma með þetta hingað, en ég geri það ekki síst til að sannfæra sjálfa mig endanlega um að þetta sé í lagi, ég geti verið fegin að það er eitthvað sem getur komið í staðinn fyrir "hefðbundnu næringuna".
Í byrjun mælti ljósan með einni ábót á dag, bara svona fyrir nóttina, en nú er hádegi og ég var að enda við að gefa honum stóran pelaskammt. Stærri en hún reiknaði með að hann myndi geta drukkið eftir brjóstagjöf.
Sem er auðvitað ágætt, því nú þykist ég vera nokkuð örugg um að drengnum líður ágætlega, og á þennan hátt er líka voða þægilegt að geta fylgst með hvað hann er fá oní sig.
Svo er bara að sjá á mánudaginn, þegar hann verður vigtaður aftur, hvort þetta sé eitthvað að ganga hjá okkur.
En nú er rokið að mestu hætt úti, ég ætla að nota sénsinn og kíkja út í smá göngutúr.
Þá væri auðvitað eftir því að það færi að rigna.....

3 Comments:
At 7:46 e.h.,
Birta said…
Mér finnst allt í lagi að fara út í persónulega hluti á bloggum ;)
At 8:45 f.h.,
Þorbjörg said…
Það er auðvitað mismunandi hvað fólki fynst hæfa að setja á opnar blogg síður en á meðan þér líður vel með hvað þú ert að segja frá þá er það bara fint.
En í sambandi við pelagjöfina þá verða sumar nýbakaðar mæður að bíta í það súra epli að mjólka ekki eins og verðlauna kýr. Þau börn sem fá ábót eða eru algörlega á pela hafa að mínu viti ekki orðið meint af, ég er viss um að þau eru að fá allt það sem þau þurfa næringarfræðilega séð, en auðvitað kemur ekkert í staðinn fyrir móðurmjólkina og tengslin sem myndast þegar barn er á brjósti.
úff þetta átti ekki að vera svona langt hjá mér.
At 9:25 f.h.,
Nafnlaus said…
Hæ skvis,
mundu bara ad thu getur ekki stjornad tvi hversu mikid kemur ur brjostunum. Frabært hja ter ad hugsa bara um hag litla sæta (er buid ad skira hann??).
Good luck
Skrifa ummæli
<< Home