Euroþvæla
Ég var ekkert hissa að við komumst ekki áfram í gær.
Miðað við hvað það var púað á dömuna um leið og hún steig á sviðið, þá kom mér eiginlega á óvart að hún fengi að koma fram yfir höfuð! Ég hef bara bara aldrei heyrt annað eins.
Persónulega held ég með Bosníu, mér fannst það vera svona eina lagið sem á virkilega heima í svona keppni. Vel sungið, flott samið, og allt alveg ofboðslega vandað í kringum útsetninguna.
Fyrir utan það að gaurinn syngur á eigin tungumáli, án þess að mixa ensku í eina og eina setningu, og lagið er eins þjóðlegt og það getur orðið.
En það er bara ég, sjálfsagt finnst einhverjum þetta vera bölvað gaul.
Þannig að það verður lítil spenna hér á laugardagskvöldið. Haha, þá get ég ekki annað en hlegið að liðinu sem var að byrgja sig upp af bjór og snakki á Eiðistorgi í gær, héldu allir að Silvía Nótt yrði pottþétt í aðalslagnum!
Suckers....
En annars lítur helgin skítsæmilega út. Makinn að vísu að vinna fullt af aukavinnu, en það verður þá bara kósý þess á milli.
Það hlýtur að koma að því, að við getum öll bara slakað á saman um helgar, farið í bíltúra og vakað soldið án þess að þurfa að hafa áhyggjur af vinnu daginn eftir.
Jafnvel fengið sér einn bjór eða svo....
En nóg um það. Hrísgrjónin mín eru örugglega orðin soðin og flott.
Later! ;)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home