Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

18 maí 2006

Congratu.....æi, nei.

Jamm, ég er komin með skelfilegt leið á þessu lagi.
En samt sem áður er ég alveg hrikalega spennt að vita hvað gerist í undankeppninni í kvöld.
Held nefnilega að þetta sé soldið svona "you either love her or hate her" dæmi sem er í gangi þarna úti.
Þetta er líka svo óútreiknanlegt, ég man ekki betur en að Selmu beyglu hafi verið spáð sigri þarna í fyrra, en svo komst hún ekki einu sinni í úrslitin, montnum Íslendingum til mikillar gremju.
Ég verð allavega límd fyrir framan tækið í kvöld.
Og á laugardaginn, ef þetta fer vel.

Synir mínir tveir eru orðnir alvöru gaurar. Sá litli er as we speak að gaula á athygli í ömmustólnum sínum á gólfinu, á meðan sá eldri sefur á sínu græna í herberginu sínu...
kl. 17:00 á fimmtudegi.
Maður getur þá rétt ímyndað sér hvað það verður gaman að koma honum í rúmið í kvöld.
En það er svosem ekkert skrýtið að hann hafi lognast útaf. Gauragangurinn í honum hefur verið þvílíkur í dag og síðustu daga, að ég held stundum að ég sé að missa vitið.
Athyglissýkin orðin meiri en nokkru sinni, og hann er meira að segja orðinn aggressívur með því.
Fékk einmitt heimsókn frá Ástu minni fyrir 2 dögum eða svo, og á meðan á þeirri heimsókn stóð var grýtt í mig bæði leikföngum og grjóti, og svo fuku nokkrir hnefar og fætur í áttina að mér.
Ekki frá Ástu samt...

Þetta mun vonandi róast eitthvað, mér skilst nefnilega að það sé voða vinsælt að taka svona tímabil einstaka sinnum.

...En nú er gaulið í einum orðið að einhverju hungursveini...

Meira næst.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home