Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

13 apríl 2006

Mont ársins

Nú er ég búin að segja öllum þetta sem ég hef heyrt í, og finnst það skylda mín að reporta það hingað líka...

Ljósan sem hefur verið að koma heim að skoða nýja kútinn, hefur ekkert verið að leyna því að hún er alveg obboslega skotin í honum.
En í gær sló hún allt út, þegar hún sagði eftir að hafa haft hann í fanginu í lengri tíma:
"Í fullri einlægni, þá get ég alveg sagt að þetta er með flottari börnum sem ég hef séð."

Þá roðnaði ein lítil Maja. Ekkert lítið sem ég varð montin. ;)

Ég hef sko alveg átt bágt með mig síðan ég átti hann, mér finnst hann svo hrikalega mikið rassgat.
Sá eldri var líka svona rosalega sætur, og þá var ég sko ekkert að trúa því að þetta væri hægt...
Hvað þá þegar það kemur annar sem er alls ekki síðri!

Oh, þetta er svo gaman. En ég ætla líka bara að láta þetta duga, held ég.
Það rifjaðist svo mikið upp í kringum þessa fæðingu, að núna skil ég ekki hvernig konur geta mögulega staðið í því að vera að eignast fleiri en 2 börn...
Eins og mamma, sem eignaðist 5 stykki!

Well, thanks, but no thanks. Ég er ekki alveg svo mikil súperkelling.

En... þetta gengur allt alveg ótrúlega vel.
Meira að segja alveg vonum framar.
Sá stutti veit ekkert betra en að liggja á brjósti, sem er eitthvað sem ég þekki ekki frá þeim eldri.
Hann sefur meira og minna allan daginn, og þegar hann er vakandi veit maður varla af honum.
Algjör draumur.
7-9-13.

Að miklu leyti held ég að það sé því að þakka, að við hjónin tókum þá ákvörðun að vera ekkert að taka á móti neinum gestum svona fyrstu vikurnar. Nema auðvitað ömmunum.
Ég get bara ekki ímyndað mér að standa í einhverjum endalausum heimsóknum, þegar ég er að reyna að einbeita mér að brjóstagjöfinni og öðru.
Að ég tali ekki um afbrýðissemina sem er komin upp í þeim eldri, það yrði of mikið fyrir hann, greyið, ef allir væru að koma í heimsókn til að skoða litla barnið en ekki tala við hann, þar sem hann er svona varla farinn að ná þessu ennþá.

Mamma er að fara í eitthvað ógurlegt frí í næstu viku í 8 daga eða hvað það er.
Þá ætlar hún að vera soldið með þann eldri og hjálpa mér hérna heima og annað.
Það er sko alveg afskaplega vel þegið, því þessa dagana er makinn að vinna myrkranna á milli, bókstaflega, þannig að ég get ekki ætlast til þess að hann fari í allt það sem ég kemst ekki yfir sjálf hérna heima. Hann hefur samt verið svo duglegur, þessi elska.

But... ég má ekki vaka of lengi. Sá nýi er sofnaður næstu 4 tímana eða svo, og þá er eins gott að nota sénsinn og dorma soldið líka.

Adios. ;)

2 Comments:

  • At 3:42 f.h., Blogger Þorbjörg said…

    Mér finst það bara gott hjá þér að segja fólki bara að slappa af og koma seinna. Við bíðum spennt eftir að þú gefir grænt ljós á heimsókn. Frábært að það gangi allt vel.

     
  • At 2:05 f.h., Blogger Birta said…

    Jamm, ég þori varla að hringja í þig því ég vil ekki hætta á að vekja þig dúllan mín :)
    Ég er ekkert hissa á því að ljósan skyldi segja þetta. Maggi var gullfallegt barn og ég er ekki í neinum vafa á að þessi sé það líka ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home