Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 apríl 2006

*Það held ég nú*

Jamm, það er nú það.

Ákvað að nota sénsinn meðan það eru smá rólegheit og gefa smá update á öllu sem hefur gengið á síðan síðast..!

Á fimmtudagskvöldið ákváðum við hjónin að horfa á Ray, sem ég var nú óvenju fljót að sofna yfir.
Þegra klukkan sló 3 um nóttina vaknaði ég við fyrstu verkina, sem ég var nú bara ekki að trúa hvað væru ógeðslega sárir, það hlaut bara að vera eitthvað að!
Ég lét lítið á því bera við makann, reyndi bara að sofna aftur í sófanum.
5 mínútum seinna byrjaði þetta aftur, og svei mér ef þetta varð ekki bara verra!
Úff, þarna átti ég nú soldið bágt með að láta ekkert í mér heyra, og æjaði þessi lifandis ósköp.
Brá mér á klósettið til að athuga hvort það væri ekki allt í sóma, og ætlaði nú bara aldrei að koma mér þaðan út, verkirnir urðu strax svo örir og sárir!
Makinn vakti þann stutta á meðan ég barðist við að gera mig klára, og svo var bara farið með dömuna beinustu leið uppá fæðingardeild.
Mónitor og allt það, og eftir að hafa verið með verki allt í allt í um 1 og hálfa klst, var ég komin með 4 í útvíkkun..!
Ég var drifin uppá herbergi með baði og alles, eftir að hafa tjáð ljósunum það, að ég ætlaði að reyna að fara deyfingarlaust í gegnum þetta. Þær voru voða ánægðar að heyra það.
Síðan einhvern leið þetta bara, með ofboðslegum verkjum og pirringi og dasi....
Og áður en ég vissi af, var ég búin að kreista út úr mér 5,325 kg dreng, sem mældist 56 cm á lengdina!
Við hjónin ætluðum að missa augun úr tóftunum, þvílík stærð á einu barni!
Og það barninu okkar!
Segið svo að kvenlíkaminn sé ekki magnaður. Þessi jötunn kom fljúgandi í heiminn, án þess svo mikið sem að særa mömmu sína um einn millimetra, sem þýðir engir saumar, og hún alveg deyfingafrí.

Eins og þið getið ímyndað ykkur, þá er ég alveg að rifna úr monti, og ég hvet sko allar sem eiga eftir að eignast börn, að prófa að gera þetta svona.

Ég ætla að setja to be continued á þetta, því einn er orðinn voða svangur....

Bæ í bili!

9 Comments:

  • At 11:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hjartanlega til hamingju með litla gullið, ofsalega stór og stæðilegur og ég er ógó stolt af þér að hafa "tekið þetta í nösina" :o)

    Kærar kveðjur

    Sigurrós

     
  • At 12:04 f.h., Blogger Þorbjörg said…

    María, innilega til hamingju með að þetta sé búið og rosalega er ég glöð fyrir ykkar hönd að allt gekk vel.

     
  • At 12:11 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    til hamingju með prinsinn, ég ætla nú ekki að segja litla :Þ Þú mátt alveg var að rifna úr stolti ég er svo stolt af þér :)

     
  • At 1:07 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    vá!!! til hamingju:) já þú ert ekkert smá dugleg!! ég er einmitt búin að ákveða að reyna að gera þetta deyfingalaust, en svo veit maður aldrei:) en rosalega er hann stór!! birta sagði mér einmitt hvað hann væri stór og ég sá ekki fyrir mér að það væri neitt eftir þarna niðri:D en sem betur fer fór þetta svona;) gangi ykkur bara allt í haginn og hamingjuóskir í bæinn:) (úhh þetta rímaði)

     
  • At 4:50 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá til hamingju sæta!
    Þú ert engin smá kjarnakona:) Ég er þvílíkt stolt af þér, ekki margar sem taka þetta svona í nösina;)

    Knús og kossar og til hamingju með risann!:)

     
  • At 10:16 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Vá vá segi ég bara ;)
    innilega til hamingju með stóra prinsinn :D Hafið þið það sem best knús og kossar frá Lenu og stelpunum...

     
  • At 2:35 e.h., Blogger Birta said…

    Þú ert officially hetjan mín Maja :)

     
  • At 12:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ótrúlegur kvenlíkaminn. Mikið ertu heppin og dugleg kona !! Stolt af þér. kveðja frá Höfn

     
  • At 12:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ótrúlegur kvenlíkaminn. Mikið ertu heppin og dugleg kona !! Stolt af þér. kveðja frá Höfn

     

Skrifa ummæli

<< Home