Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

27 apríl 2006

Draumarugl

Almáttugur, ég vona að eftir þessa nótt sé ég hætt að vera berdreymin...
Mig dreymdi nefnilega að ég rækist á eina ómerkilegustu lygatík sem ég hef þekkt á ævi minni.
Það væri ekkert voðalega vinsælt að fara eitthvað að hitta á hana núna, ætli ég myndi ekki hreyta einhverjum vel völdum orðum í hana...
Eins og ég gerði einmitt í draumnum.

Ömurlegt samt hvað þetta getur eyðilagt fyrir manni daginn, að vakna með einhvern svona skít í hausnum. Nú er ég alveg með hana á heilanum, og langar helst að öskra eitthvað útí bláinn.
Er að vísu á leiðinni í göngutúr, kannski get ég hrópað einhver ókvæðisorð á Nesöldurnar....

Eldri drengurinn er að missa vitið af leiða, verð að skella mér út...

Later, dudes.

1 Comments:

  • At 10:46 f.h., Blogger Birta said…

    Öskraðu á öldurnar, þær heyra ekki neitt ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home