Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

05 apríl 2006

Allt í plati!

Helvítis heitasta helvíti....

Fór í mæðraskoðun áðan, sem var sem betur fer sú síðasta.
Og hvað haldið þið...
Hún skoðar á mér kviðinn, og segir svo "Barnið er nú ekki búið að skorða sig ennþá..."!
Ég varð auðvitað ofsa hissa, og sagði henni að þessi sem ég hitti á spítalanum fyrir 2 dögum hefði sagt að barnið væri alveg pikkfast!
Nei, hún gat ekki fundið það, og testaði alveg 2-3 sinnum í viðbót.

Oj, það litla sem ég var svekkt, maður.
Þannig að það er ekkert víst að það sé eins stutt í fæðinguna og ég hef haldið í 2 daga.

Þar sem þetta var síðasta mæðraskoðunin, þá á ég að mæta uppá meðgöngudeild á föstudaginn í mónitor og eitthvað mat. Og á mánudaginn, ef ekkert verður farið að gerast, á ég að hafa samband við fæðingarganginn, en ég veit ekki hvort það sé bara til að fá tíma í gangsetningu á miðvikudeginum (þegar ég er gengin 42 vikur), eða hvort ég fari beint þá að láta skella þessu af stað.

Nú er ég alveg skíthrædd við það helvíti, þ.e. gangsetninguna, eftir að ég heyrði að bæði gangi fæðingin þá oft hægar, og að það eru meiri líkur á keisaraskurði í kjölfarið.
Alveg eitthvað fyrir mig, sem er búin að kvíða fæðingunni í marga mánuði.

En svona er þetta nú bara. Það er víst voða lítið hægt að segja blessuðu krílinu til, en það segir mér bara að það verður fljótt tekið á uppeldinu hér! ;)

Þið bara haldið áfram að rembast....

10 Comments:

  • At 6:45 e.h., Blogger Birta said…

    Þegar þetta barn er loksins komið út þá verður það líklegast altalandi. Ætli þú getir ekki sett það beint í framhaldsskóla.

     
  • At 8:52 e.h., Blogger Maja said…

    Hahaha, það verður ekki bara altalandi, það verður komið með Nóbelsverðlaun fyrir doktorsritgerð í jarðvísindum!

     
  • At 10:49 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    og loðið bak? :S

     
  • At 1:07 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Já svei mér þá, það getur allavega passað Magga á meðan þið hjónin skjótist í bíó :)

     
  • At 2:12 e.h., Blogger Maja said…

    Haha, ofsa hentugt maður!

     
  • At 9:29 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Loksin get ég kommentað, er búin að vera að fylgjast með, blýspennt yfir því hvort ktílíus sé kominn...

    Vona að það fari að koma að þessu hjá þér, lengt hef ég gengið með 6 daga framyfir, sem er lengra en á fyrri meðgöngu og ég hélt ég myndi deyja... hver dagur í bið er ÁR þegar maður er kominn framyfir.

    Gangi þér vel skvís og ég hlakka til að fá mér fréttir af hvernig gangi og hvort þú hafir fengið prinsessu eða prins :o)

    Kv
    Sigurrós ( skjólari)

     
  • At 8:57 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hæ innilega til hamingju með prinsinn!!! Heyrði að allt hafi gengið ofboðslega vel :) 21 mörk er nú ekkert smá :)

     
  • At 6:47 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    var þetta nokkuð draumur hjá þér hildur??
    ef ekki þá innilegar hamingju óskir maja mín! vona að þér líði vel.. veit af eigin raun að það er ekki auðvelt að koma 5 kílóa barni í heiminn
    knús og kossar

     
  • At 7:10 e.h., Blogger Birta said…

    Til hamingju ástin mín með stóra strákinn!!

     
  • At 9:43 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Váááá 21 mörk! Þú ert ofurkona Maja.. þetta er engin smá bolla;)

    Innilega til hamingju með fallega strákinn:)

    þúsund knús og kossar frá DK

     

Skrifa ummæli

<< Home