Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

23 mars 2006

Tilraun 2

Ég gerði heiðarlega tilraun hérna í gærkvöldi til að skrifa eitthvað hingað inn...
Það voru komnar 2 línur þegar ég strokaði allt út og slökkti á tölvunni.

Veit ekki hvað það er, kannski bara af því það er svo langt síðan ég var að babbla hérna síðast..
Hvenær var það, 4. mars?

Anyway...

Takk fyrir afmæliskveðjurnar. ;) Dagurinn sá fór að mestu í flutninga, sem ég átti þó voða lítinn þátt í, svoleiðis.
Jújú, ég svona setti upp einhvern ógurlegan skipulagningarsvip fyrsta klukkutímann, en svo bara eiginlega gat ég ekki meir.
Mamma hjálpaði mér auðvitað helling, annars hefði ég ekki komið neinu í verk.

Og nú höfum við verið í nýja pleisinu í tæpar 3 vikur, og ég ekki enn búin að eiga.
Þetta fer nú að verða ágætt... Ég er orðin svo stór og þung og leið, að ég ætla að væla eins og ég get í ljósunni á morgun um að láta gera eitthvað í þessu.
Það eru að vísu alveg 8 dagar eftir, en mér er sama. Það er ekki eins og þetta barn sé bara einhverjar 7 merkur eða eitthvað...

Well, þetta er ágætis byrjun. Nú er ég kannski komin af stað aftur með þessi vita gagnslausu skrif mín.

Bæ í bili... Og ef ekkert heyrist frá mér, þá er ég vonandi bara upptekin við að rífa mig alla í sundur uppá spítala. ;)

1 Comments:

  • At 5:45 e.h., Blogger Birta said…

    Haha, vona að þetta fari að koma bráðum. Maður er orðinn óþreyjufullur á að sjá þennan laumufarþega þinn ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home