Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

02 mars 2006

98

Yes, maður, hvað ég er sátt við íbúðina sem við fengum!
Fór aðeins með makanum í dag að skoða, og ég var þvílíkt hrifin.
Soldið skrýtið að hafa verið komið með íbúð í hendurnar sem ég var ekki búin að skoða einu sinni, ekki laust við að ég var pínu skelkuð.
En það var algjör óþarfi, því hún er bara mjög fín.

Svo fór múttan aðeins með mig þarna í kvöld, og hún tók mál af stofunni og þetta sem mömmur sjá alltaf um. Fór strax að tala um gardínur og eitthvað.
Fínt að hafa mömmur til staðar þegar maður er að standa í þessum flutningum.

Nú er ég svo þreytt, að það er varla að ég haldi haus fyrir framan tölvuna. Enda þorði ég ekki öðru en að standa upp frá sófanum, svo ég færi nú ekki að sofna þar yfir aaagalega fínu dagskránni sem er á kvöldin.
Skil ekki af hverju þessi svakalega þreyta er, ég tók kannski eitthvað aðeins til hendinni hérna í dag, en ég meina vá...
Það fer allavega ekkert á milli mála að ég er komin 8 mánuði á leið, that´s for sure.

OK, Friends endursýning.. Later, dudes.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home