Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

01 mars 2006

96

Well, þið getið hætt að örvænta. Við erum loksins komin með þessa fínu íbúð, og það bara rétt hjá vinnustað Makans.
Mikil gleði.

Þannig að næstu daga þarf ég að hafa mig alla við að finna á mér skrokkinn aftur, svo ég geti farið að djöflast við að pakka og þrífa og annað.
Jújú, þið megið alveg bjóða ykkur fram. ;)

En þetta er frábært. Þá erum við allavega bara komin á okkar stað, svona áður en barnið poppar út. Ég hefði einhvern veginn ekki nennt að vera að standa í flutningum með kannski vikugamalt barn heima. Ég vil frekar geta bara hreiðrað almennilega um mig og ekki standa í neinu veseni.
Þá eru allir glaðir. ;)

2 Comments:

  • At 11:00 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    Það er frábært... þá getur maður hætt að örvænta ;) Þú lætur bara vita ef þig vantar einhverja hjálp við þetta allt saman :D

     
  • At 11:26 f.h., Blogger Maja said…

    Hey, takk fyrir það. Væri gaman kannski að fá smá heimsókn sem hjálpar mér með hreiðurgerðina. ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home