Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

08 febrúar 2006

Yeeesss....

Vá, hvað ég er sátt við Sirkus núna...
Þeir eru að fara að endursýna alla X-Files þættina frá upphafi!
Úúúú, nú verður sko legið fyrir framan imbann á fimmtudagskvöldum.
Og videotækið húkkað, svo makinn missi ekki af neinu.

En.. við erum ekki farin að finna íbúð enn. Ekki ein einasta áhugaverð í auglýsingunum í dag.
Ég held að það sé langt síðan þetta hefur tekið einhvern tíma, þ.e. meira en einn sólarhring.
Kannski er það einmitt vegna þess hve leiga hefur hækkað alls staðar, maður tímir ekkert að fara í neitt almennilegt.

Svo veit ég að það eru nokkrir kisuvinir sem lesa þetta bull í mér reglulega, og ég get sagt ykkur frá því að hann Albert minn er allur að koma til. ;)
Hann er meira að segja búinn að borða pínupons í dag, og var í einhverju tætingsstuði í rúminu okkar.
Oh, það er svo gaman að vera búin að endurheimta hann eftir "allan þennan tíma." ;)

Ofsa tóm, aðallega sökum þreytu sem magnast núna með hverjum deginum sem líður.
Það fer sko ekkert á milli mála að það fer að styttast í lætin hjá mér.
Á morgun er ég einmitt gengin 33 vikur, sem þýðir að það eru ekki nema 7 vikur eftir af eðlilegri meðgöngu..!
En við hjónin erum nú bæði búin að spá því að krílið láti sjá sig eitthvað aðeins fyrr, þannig að ég segi að það séu 4 vikur eftir. Þá verður þetta svipað og með Pjakkinn. ;)

Ekki veitir af baráttuhugsunum þangað til....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home