Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

21 febrúar 2006

Insomnia

Fyrir einhverju síðan voru þessir bloggarar sem ég kannast við alltaf að tala um að þær næðu aldrei neinum nætursvefn, lægju semsé andvaka langt fram á morgun, og væru svo hörkusyfjaðar daginn eftir. Meira að segja mamma mín var að kvarta yfir þessu, og ég bara botnaði ekkert í hvað væri eiginlega að þessu liði.
Þær hljóti bara að hafa verið að kaffiþambi fram á miðnætti, ofsa hissa yfir að koma svo ekki dúr á auga!

En... nú skyndilega er ég að kynnast þessu líka.
Ég ætlaði aldeilis að vera dugleg í kvöld, búin að vera að drepast úr svona bumbuþreytu í allan dag, og komin með hausverk í kringum miðnætti.
En viti menn. Ég leggst uppí rúm, hausverkurinn hverfur hálftíma síðar, og klukkutíma eftir það er ég komin á fætur og sest aftur við tölvuna.

Þetta er ekki hægt.

Það er nú sem betur fer ekkert fyrirliggjandi hjá mér á morgun, þannig að ég get bara tekið því rólega allavega fram að hádegi.

Svo þegar ég pæli í því, að þá er kannski ekkert skrýtið þó ég eigi kannski pínu erfitt með svefn þessa dagana.

Ég er með krónískan brjóstsviða, sem bara versnar þegar ég leggst út af.
Bumban er orðin svo fyrirferðarmikil, að ég næ varla andanum lengur þegar ég ligg, hvort sem það er á hliðinni eða á bakinu. Glöggir lesendur geta sjálfsagt áttað sig á því að ég er ekkert að liggja á maganum í þessu ástandi.
Ef ég er svo heppin að krílið kemst í ham, þá er voða vinsælt að lemja hausnum á sér annaðhvort utan í þvagblöðruna eða grindarbotninn. Gasalega skemmtilegt, alltaf að hrökkva upp við lætin.
Svo er það auðvitað blessuð grindin, sem er eins og hafi verið brotin öll upp og síðan pússlað vitlaust saman aftur. Ég vakna svona 7-8 sinnum á nóttu til þess eins að bylta mér í rúminu, og því fylgja ofsa verkir og leiðindi.

Haldið þið að þetta sé ekki skemmtilegt?

Rétt upp hönd sem vill skipta!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home