Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

27 febrúar 2006

Idol... Ipod.. Icon...

Já, þetta er allt sami grauturinn.

En ameríska Idolið var allavega að enda í kvöld, þar sem var verið að vóta út 2 gaura og 2 píur.
Sá og sú sem ég held með eru bæði inni, þannig að ég er sátt. ;)

Maður sér samt alveg muninn á atkvæðagreiðslunni þarna úti og brandaranum í kringum kosningar hér á .... ööö.. klakanum.
Hér fer ekkert á milli mála að það að koma úr mátulega stóru dreifbýli tryggir þig algjörlega til að komast eitthvað áfram, því allir í bænum kjósa litlu dúlluna sína, bara svona til að koma staðnum á kortið.
Hins vegar held ég að ég hafi aldrei verið ósátt þegar einhver fer út í þessu ameríska.
Man jú, eftir einu skipti, árið sem Fantasia vann, þá var dama sem heitir Latoya London látin fjúka, sem ég man að mér fannst útí hött.
Svona er ég inní þessu. ;)

Jæja, ég þarf ekkert að æsa mig, held ég, yfir fréttunum í kvöld... Þó ég gæti það nú alveg, en ég bara nenni því ekki núna. Ég verð að passa blóðþrýstinginn þegar ég er svona á mig stödd líkamlega.
Enda held ég að sem flestir séu hættir að nenna að lesa þetta röfl alltaf hreint.

En, ekkert röfl kallar líka á bloggleysi...

Skal vera hress á morgun.

2 Comments:

  • At 9:50 e.h., Blogger Birta said…

    Neeeii, mér finnst svo gaman að lesa pólitísku bloggin þín. Ég verð svo reið líka :D Hahaha, annað en þvaðrið í mér ;)

     
  • At 11:17 e.h., Blogger Maja said…

    Hehe, jæja, það er ágætt. ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home