Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

13 febrúar 2006

Fari það bölvað!

Það er glatað að vera hooked af nammi.
Núna er ég búin að hakka í mig ab-mjólk "með viðbættum sykri", einum banana og dós af malti til að reyna að fullnægja sykurþörfinni.
En samt langar mig í nammi. Enda sit ég núna með rest af bland í poka síðan á laugardaginn.

Rúv eru glataðir. Þeir kötta allataf á barnatímann þegar einhverjar andskotans íþróttir eru í gangi. Ísland eru ekki einu sinni að keppa á þessum helvítis vetrarólympíuleikum!
Og það er nú ekki það langt síðan EM var að taka yfir allt.
En maður skilur þetta ósköp vel svosem, það eru ekki nema tvær Sýn stöðvar til....!

Og fyrst það er hægt að starfrækja tvær íþróttastöðvar, þá mættu þeir alveg fara að athuga með að opna eins og eina Hnakkastöð eða svo.
Kallarnir, Sirkus Rvk, Splash TV, Laguna Beach og Summerland eiga ekki heima í sjónvarpstækjum hjá siðmenntuðu fólki.
Einu sinni horfði ég á heilan þátt af Laguna Beach (hef ekki lagt í þessa íslensku ennþá), og ég get svo svarið að greindarvísitala mín lækkaði um svona 56 stig.
Það er þá allavega hægt að hlæja að ljóskubeljunum í Girls Next Door.

Neinei, ég er ekkert ergileg í kvöld. Líður satt best að segja alveg ágætlega.
Mér fannst bara vera kominn tími á smá álitsgjöf hingað inn.

Kannski verð ég aðeins jákvæðari á morgun. ;)

3 Comments:

  • At 3:01 e.h., Blogger Birta said…

    ..jú.. Ísland er að keppa í vetrarólympíuleikunum.. Ég sá einn íslenskan allavega í gær á skíðum :)

    Annars fannst mér gaman að horfa á þetta þegar ég var lítil. Listskautarnir og svona. ;)

     
  • At 3:21 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    ég horfði einmitt á listhlaup á skautum í gær og fékk alveg nostalgíu kast:)
    en samt glatað að ekki sé hægt að hafa þetta á íþróttarásunum.. eða hafa bara svona rúv+ ...hehe

     
  • At 5:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    já!! ég er svo hjartanlega sammála!! af hverju er ekki opnuð ný sjónvarpsstöð undir íþróttir??? íþróttir eiga hvort sem er heiminn svo af hverju hafa þær ekki fengið sína eigin sjónvarpsstöð hérna á fróni??

     

Skrifa ummæli

<< Home