Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

20 febrúar 2006

Crap.

Djöfull er ég fegin að vera ekki með útvarp heima hjá mér.
Helvítis lagið með Silvíu Nótt er búið að vera svoleiðis glymjandi í hausnum á mér síðan ég horfði á þessa keppni í gærkvöldi, að ég fer að verða vitlaus bráðum.
Og ég get alveg ímyndað mér hvernig útvarpsstöðvarnar nauðga þessu lagi núna, sérstaklega þessar æðislegu Kiss FM og 95.7 og það allt saman.
God....

Þó mér finnist Regína Ósk nú ekki sú allra skemmtilegasta, þá held ég að það hefði verið skárra ef lagið hennar hefði komist áfram. Þá slyppi maður líka við að heyra brot úr hinu laginu í hvert einasta skipti sem minnst er á þetta blessaða kærumál í fréttunum.

Gerið þetta bara einfalt. Sleppið því að senda þetta lag út.
Ef þetta lag fer út, að ég tali ekki um ef það kemst áfram, þá verður sko ekki flóafriður í fréttunum fram á haustið út af þessu rugli.

Þessi brandari er kannski bara orðinn full langsóttur eftir allt saman.

Jújú, fyrst fannst mér voða fyndið að láta þessa fígúru taka þátt í keppninni, rétt eins og Botnleðja gerðu fyrir nokkrum árum. Bara svona til að hrista aðeins upp í liðinu.
Þeir lentu í 2. sæti í undankeppninni, SAMT var tönnlast á því í margar vikur á öllum útvarps- og sjónvarpsstöðvum, hvílíkur skandall það HEFÐI orðið ef þeir hefðu nú keppt fyrir okkar hönd í aðalkeppninni.
Í ár stökk skandallinn beint í fyrsta sæti, og almáttugur... ég held ég fari bara í fréttasvelti þar til keppnin sjálf verður í apríl eða hvenær það er.

Svona er þetta nú.

Hins vegar var verið að ræða aðeins alvarlegra mál í Kompás í kvöld.
Mál sem ætti helst að fylla alla fréttatíma af, í staðinn fyrir hitt.
Og það voru semsé vafasamir kallar að ná sér í litlar stelpur á netinu, þá annað hvort í gegnum einkamal.is eða msn.

Kompás settu inn svona "auglýsingu" á Einkamálin, sem átti að vera frá 13 ára stelpu.
Á nikki stelpunnar í fyrirsögninni fór ekkert á milli mála að þetta væri bara einhver smápía, en þeir létu það vera disa_92. Og svo gaf hún upp aldurinn í auglýsingunni sjálfri.
Auglýsingin hafði verið skoðuð 899 sinnum þegar þátturinn var tekinn upp, og ég held að það hafi 83 verið búnir að svara henni. Og þið getið kannski ímyndað ykkur hvernig eitthvað af svörunum litu út. Allavega varð mér óglatt.
Þið sem sáuð þetta ekki, þá mæli ég með að þið fylgist með hvort þetta verði ekki endursýnt á NFS, sem ég held að hljóti að vera.
Ætla ekkert að tíunda þennan þátt neitt hér.

En af okkur?
Nú, það er bara þetta sama; íbúðaleitin going nowhere, ég bíð eftir að springa í sjónvarpssófanum á allra næstu vikum, og að sjálfsögðu er ég orðin latari en andskotinn.
Og er alltaf svöng. Það fylgir þessu víst.
Og þegar maður er latur og alltaf svangur combined, þá þýðir það svona yfirleitt að maður er ekkert endilega bara að troða í sig einhverjum ávöxtum og fíneríi, því ekki nenni ég í búðina að kaupa þá...!
En þetta er nú bara svona í restina, svo verð ég ofsa dugleg aftur þegar allt er yfirstaðið.

Vonandi.

2 Comments:

  • At 11:28 f.h., Anonymous Nafnlaus said…

    hæ hæ það er hægt að sjá kompás endursýndan á netinu, á visir.is :) Ætla beint þangað og horfa á þetta!! Kv Hildur

     
  • At 12:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said…

    SUSS MAJA!!!! áfram silvía!!! ég er reyndar alveg sammála.. maður nær þessu lagi ALDREI út úr hausnum á sér og þetta er ekkert æðisgengilegt lag, en ég held samt með henni bara upp á húmorinn;) mér finnst íslendingar vera taka þessari keppni allt of alvarlega og það breytist kannski með því að leyfa henni að fara út og dilla sér fyrir frama evrópu:D ohhh svo er ég komin með lagið á heilann bara af því ég mfór að hugsa um það... damn...

     

Skrifa ummæli

<< Home