Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

28 janúar 2006

Sögur af pabba

Þeir sem þekktu pabba minn eitthvað, vita að hann gat verið alveg fáránlega fyndinn og klikkaður. Og var heldur yfirleitt ekki lengi að finna upp á einhverri vitleysu.

Við mamma fórum í Kringluna í dag, og á leiðinni heim, vorum við að rifja upp allavega tvö alveg geðveikt fyndin atvik.
Hvoru tveggja er þetta eitthvað sem gerðist þegar það var hringt heim, en í vitlaust númer.

Eitt skiptið var hringt heim, og spurt um Sigga.
Sem að sjálfsögðu var bara einhver Siggi útí bæ, enginn sem pabbi kannaðist við.

RIIING RIIING

Pabbi: "Já, halló?"
Fullorðin kona: "Já, halló, er hann Siggi þarna?"
P: "Hann Siggi? Nei, heyrðu, hann er bara farinn á sjóinn!"
F.K. "Er hann hvað?? Farinn á sjóinn?!"
P: "Jájá, hann fékk þarna pláss á einhverjum togara, og skellti sér bara af stað í gær"
F.K. "Ég er svo aldeilis his... Og hann sem var búinn að lofa að mála hjá mér þvottahúsgólfið!"
P: "Já, svona getur þetta verið stundum"
F.K "Ji, ég á ekki einasta orð...."

Svo endaði þetta fyndna samtal.

Hitt samtalið var sko ekki síður algjör vitleysa, en það var einhvern veginn svona...

RIIING RIIING

P: "Já?"
Kona, mjög snaggaraleg: "Hæ, heyrðu, nennirðu nokkuð að setja djúsinn inní ísskáp? Við erum alveg að fara að koma!"
P: "Ha? Jájá, ekkert mál. Heyrðu, það er alveg kaffilaust hérna hjá okkur, væruð þið nokkuð til í að koma með kaffi með ykkur?"
K, hikandi: "Ha, kaffi? Jújú, við hljótum að geta reddað því....."

Og einhvern veginn endaði þetta samtal, án þess að nokkur misskilningur væri leiðréttur af pabba hálfu.

Þegar við mamma vorum að rifja þetta upp í dag, þá lá við að ég kafnaði úr hlátri.
Svo fórum við auðvitað að sjá fyrir okkur þegar hann Siggi mætti heim til aumingja konunnar í málningargallanum, og skilur ekkert hvað hún er að rugla þegar hún fer að tala um eitthvað togarapláss...
Eða hjónin sem birtast með kaffipakkann, sem enginn kannast við að hafa beðið um...
Og djúsinn stendur enn á borðinu!

Ef ég nennti, þá gæti ég sko setið við tölvuna í allt kvöld og skrifað inn svona bullsögur af kallinum, en ég hugsa að ég láti það bíða betri tíma.
Kannski að ég læði bara inn einni og einni, svona þegar ég er í stuði.

1 Comments:

  • At 11:53 e.h., Blogger Magndís said…

    Skemmtileg saga. Hann hefur greinilega verið algjör húmoristi :)

     

Skrifa ummæli

<< Home