Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

23 janúar 2006

Litla rassgatið mitt

"Mamma, ég ætla ekki að lúlla mikið, ég ætla bara að lúlla einn..."

Þetta hrökk uppúr stráknum mínum eitthvað kvöldið þegar hann lá í rúminu, eitthvað latur við að fara að sofa.

Ég var nú að spá í að fjárfesta í einni svona rosalega flottri stílabók, og punkta niður alla vitleysuna sem kemur frá honum.
Eftir 3 ár eða svo á ég örugglega efni í heila bók...
Og svo kemur bara næsta barn með nýja bók. ;)

"Nýja barnið" er einmitt farið að láta finna soldið fyrir sér. Fór uppá Kvennó á laugardaginn, skíthrædd um að allt væri að fara í gang hjá mér. Svo var nú ekki, sem betur fer,
en allur er varinn góður.
*Sagði nunnan og setti smokk á kertið*

Að öllum líkindum er ég hætt að vinna frá og með deginum í dag. Nema verslunarstjórinn verði svo góður að innrétta tölvuherbergið sem fæðingarstofu, þá kannski þori ég að halda áfram.
Þetta er nefnilega komið á það stig hjá mér, að "one false move" getur bara sett allt af stað.
Eða finnst mér allavega, þó svo að ég eigi alveg 2 mánuði eftir.
Það borgar sig ekki að taka neina sénsa með þetta.

Það er líka fínt að vera bara heima næstu vikurnar, eða á meðan ég er að bíða.
Ekki veitir af að safna orku fyrir tímann sem kemur eftir að barnið er fætt.
Sá stutti er líka leikskólalaus, þannig að það eitt og sér er ágætis afsökun.

Er aðeins byrjuð að fara í gegnum þau ungbarnaföt sem eru til, þvo og strauja og svona.
Þetta er voðalega gaman. sérstaklega þar sem ég var algjörlega óundirbúin síðast.
Mamma var á fullu að þvo öll föt og gera allt klárt meðan ég lá grenjandi á spítalanum að pota krílinu út, 19 dögum of snemma.
Ofsa panic.

En það hafðist nú. Enda veit ég ekki betur en að það séu til dömur sem hafa bara fengið eitthvað aðeins í magann eða bakið, og áður en þær vita af verið komnar með barn í hendurnar án þess að gruna nokkurn skapaðan hlut.

Það hlýtur samt að vera nice, maður.
Vita ekki neitt, þurfa ekkert að vera að kvíða neinu, engin taugaveiklun í 9 mánuði eins og fylgir oft, bara lifa lífinu eðlilega og svo bara komið barn.
Hlæhlæhlæ! Samt soldið glatað...

Jæja, þá hef ég afrekað það að koma með algjörlega óundirbúin skrif á síðuna mína.
Verði ykkur að góðu.

Góða nótt.

1 Comments:

  • At 12:36 e.h., Blogger bite me! said…

    hún mágkona mín er með öll svona gullkorn skráð á síðuna sína á barnaneti:) það er mjög sniðugt að skrifa þetta allt saman niður :D
    dæmi:
    "Við liggjum uppí rúmi með nýju litlu systur

    -Mamma nú er barnið komið út!

    -já

    -Hvar kom það út???

    -Milli fótanna (Vissi ekki beint hvernig átti að útskýra þetta fyrir 4 ára )

    -mamma, sprakk þá á þér löppin???"

    hahaha þetta er svo æðisleg stelpa!! :D

     

Skrifa ummæli

<< Home