Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

13 janúar 2006

Leikskólabusiness

Jæja, þá er komið að því.
Ég er að búa mig undir að segja upp plássinu sem stubburinn hefur verið með á leikskólanum, for good.
Skrýtið, þó ég sé alveg furious útí þetta lið, og vilji bara ekki sjá að hann fari þarna aftur, þá kvíði ég því alveg hryllilega að tala við leikskólastjórann, og útskýra fyrir henni hvers vegna ég vil ekki hafa þann þarna lengur.
Það er nú einu sinni þannig, að ég hef alltaf átt alveg ótrúlega auðvelt með að bölva einhverju eða einhverjum í sand og ösku, á meðan það er ekkert sem viðkomandi heyrir.
Helst af öllu langar mig að fara þarna á eftir og hella mér yfir liðið, en ég einhvern veginn hef það ekki í mér.
Kannski af því ég veit, að það þarf ekki nema minnsta uppnám til að ég fari að grenja.
Það yrði soldið asnalegt.

En fyrst hann fer ekki í leikskólann, þá er ég ekkert að vinna nema bara eftir hádegi þessa dagana. Sem er ágætt, því mér finnst voða gott að hafa góðan tíma á morgnana til að koma mér af stað, sérstaklega þar sem ég verð fyrirferðameiri með hverjum deginum sem líður.
Það er bara fulltime job að koma sér á fætur núorðið, og að gera Þann Stutta kláran.
Það var eiginlega orðið þannig, að ég var alltaf of sein í vinnuna á morgnana, bara út af seinagangi.

Mútta mín á víst afmæli á morgun, þannig að það verður eitt stykki afmæliskaffi þessa helgina. Brauðréttir og kökur oní bumbulínu, hljómar alls ekkert illa. :)

En, við skulum sjá hvernig fer með þessi leikskólamál. Ef ég segi ekki upp plássinu, þá held ég áfram að fá rukkanir fyrir því, og við nennum því nú ekki.
Þannig að þetta er eitthvað sem ég verð að gera, og hana nú.
Ekkert rugl.

Þegar ég er búin að því öllu og þarf ekkert að láta sjá mig þarna aftur, þá útskýri ég kannski nánar um hvað málið snýst, þó það sé ekki nema bara öðrum til varnaðar.

En þangað til.....

1 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home