Jólin, jólin
Jájá, góðan daginn og gleðileg jól, allesammen.
Annar í jólum í dag, þriðji í allt of miklu áti...
Var að vinna á aðfangadag eins og ég var búin að tala um einhvern tímann áður. Það var ágætt. Við mútta gáfum gamlingjunum að borða, reyndum að halda uppi einhverjum smá samræðum, sem önnur kona sá samt eiginlega alfarið um....
Að því loknu var bara nettur frágangur, sleikt útum uppá vakt í hálftíma eða svo, og svo brunaði ég bara heim rétt um hálf-tíuleytið. Þar blöstu við mér 2 svartir pokar, fullir af leikföngum sem Sá Stutti hafði rifið úr gjafapappír í miklum hamagangi heima hjá tengdamömmu. Þvílík gleði hjá einum litlum gaur. Í hrúgunni voru allskonar dýr af öllum stærðum og gerðum, hellingur af fötum, hljóðfæri og ég veit ekki hvað og hvað.
Á jóladag var vaknað mátulega snemma og legið yfir sjónvarpinu meira og minna allan daginn. Við hjónin opnuðum pakkana okkar, þar sem kom meðal annars í ljós brauðrist, endalaust af nammi, baðsloppur, glös og annað brúklegt.
Ég verð alltaf voða mikið barn á jólunum; finnst eiginlega ekkert skemmtilegra en að rífa upp pakka, þó ég reyni að vera voða dönnuð og taka þá upp á "límingunum"...
Hangikjöt hjá tengdó um kvöldið, örugglega með því besta sem ég hef smakkað, og hún klikkar heldur aldrei á dessertunum. Át eiginlega alveg tvisvar á mig gat þar.
Við lögðumst svo fyrir framan sjónvarpið þegar heim var komið, hökkuðum í okkur Camembert og svona 1/20 af öllu súkkulaðinu sem við fengum í jólagjöf, og sofnuðum. Í sófunum.
Með súkkulaði út á kinn.
Hellings rólegheit í dag, sofnaði í sófanum meðan Sá Stutti var að horfa á barnatímann, og síðan var bara tekið til hendinni þegar makinn fór að vinna. Setti eitthvað af leikföngum kútsins í geymslu, svona aðeins til að létta á heimilinu. Held að hann hafi ekkert fattað það.
Nú er reyktur grísahnakki að krauma í pottinum, og ég er í smá andlegum undirbúningi fyrir frumraun mína. Ég er að fara að brúna kartöflur í fyrsta skipti ever.
Fékk smá leiðbeiningar hjá múttu, hugsa nú að þetta muni ekki enda neitt voðalega illa.
En jæja, enough is enough! Ætla að fara að halda áfram tiltektinni og svona. ;)
Bið að heilsa öllum, læt ábyggilega heyra í mér áður en nýja árið gengur í garð,
eins og sagt er.
Ble ble í bili.