Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

21 desember 2005

Launamismunun

Ég heyrði leiðinlega frétt í gær. Fréttin fjallaði um það, að það ætti að hækka laun æðstu ráðamanna Ríkisins um einhver hellings prósent eftir áramót. Sú tala sem ég hef heyrt er 75.000 á mánuði, eða eins og Steinunn Valdís sagði, hálf mánaðarlaun leikskólakennara.
Hún er nú svo svöl, að hún hefur neitað að taka við þessari launahækkun. Hún vill ekki taka þátt í þessari ógeðslegu mismunun.

Mér finnst hún vera að standa sig vel í þessari launaumræðu allri. Hún barðist nú ekkert lítið fyrir því að hækka laun hjá lægstu stéttunum, þ.e. verkakonum og leikskólakennurum hjá Reykjavíkurborg, sem eru í samningum með Eflingu.
Væri ég ennþá að vinna í þessari 20% vinnu minni hjá Reykjavíkurborg, þá skilst mér að mánaðarlaunin mín hefðu hækkað um einhvern 6000 kall á mánuði, plús vaktaálag og annað, sem hækkar um leið og mánaðarlaunin. Allt í allt kannski einhver 10.000, sem mér finnst nú bara nokkuð fair fyrir ekki meiri vinnu.
Þannig að þessir samningar voru algjör himnasending fyrir þessar lægst launuðu í kerfinu, þ.á.m. leikskólakennara. Vita nú allir að það var alveg kominn tími á smá umbun fyrir þær.

En.... Var það ekki Adam sem dvaldi ekki lengi í Paradís? Kannski frekar við hæfi að segja Eva í þessu tilviki?
Nú ætla þessar andskotans blóðsugur að eyðileggja alla von hjá alvöru vinnandi konum, og breikka launabilið aftur. Þetta var of gott til að vera satt, enda heyrðust þvílíkar mótmælaraddir í einhverjum ljótum, skeggjuðum köllum strax daginn eftir að það var skrifað undir þessa samninga við Eflingu. Sögðu að þetta kæmi svo miklu róti á efnahaginn eða hvað það var sem þeir gubbuðu uppúr sér.

Kannski eru það helst þær sem hafa þurft að lifa við þessi laun, sem sjá ranglætið í þessu. Það er ástæða fyrir því að maður bregst svona við, og að þegar svona umræður koma upp, þá langar manni bara að hverfa úr þessu þjóðfélagi og gera Ísland að sumarleyfisstað, og engu öðru.

Ég hef enga lyst á að búa hérna þegar þetta kemur upp. Eins þegar maður heyrir að það þarf að loka leikskólum í Kópavogi sökum manneklu. Vitið þið hver grunnlaunin eru fyrir ófaglærða manneskju á leikskóla í Kópavogi? 114.000 krónur. Heilar. Það er lægra en ég er með sem kassadama. Og þetta hefði ég haldið að ætti að vera eitt af mikilvægustu störfum dagsins í dag. Að hugsa um börn sem þeim er treyst fyrir af sjálfum foreldrunum. Foreldrum sem eru að koma aur inní kerfið með því að borga sína himinháu skatta, og halda þannig landinu gangandi.

En gefum bara skít í þær. Þessum greyjum, sem ráða yfir þjóðinni, vantaði aðeins uppá að geta farið í 6 utanlandsferðir í ár. Þeir voru nefnilega að kaupa sér einbýli á Seltjarnarnesi, og þar sem innkeyrslan þeirra var svo fallega steingrá, þá var auðvitað algjört möst að fá sér einn Land Cruiser í stíl.
Greyin. Þeir komust ekki nema 5 sinnum til útlanda í ár.

Og ég sem hef það svo fínt í stúdíóíbúðinni með barn og bumbu. Ég á bara að halda kjafti.