Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

14 desember 2005

Smáralindin og jólagjafir

Kíkti með múttu og Hildi (sem er víst með blogg í fæðingu) í Smáralindina í dag. Been a while síðan ég fór þangað, þ.e. eitthvað lengra inn en bara í SPRON og Hagkaup.

Byrjuðum á kerrum handa krílunum, og síðan var stefnan tekin í búð, sem bara bjargaði vikunni fyrir mér.
Hún heitir Söstrene Grene, dönsk keðja sem er víst til út um allan heim. Þetta er svona eins og Tiger, nema bara miklu flottari og skemmtilegri hlutir, og töluvert ódýrari. Ég get líka alveg sagt ykkur það að jólasveinninn er örugglega tíður gestur þarna inni, því það er endalaust til af fínu smádóti handa krílum á öllum aldri í skóinn.
Ég ætla að sjá næstu daga hvort ég kannist við eitthvað sem drengurinn fær í sinn skó. ;)

Þær voru svo svangar stelpurnar, að við fórum í matarleiðangur. Enduðum á Friday´s, þó svo að ég væri búin að lofa sjálfri mér einhvern tímann að vera ekkert að prófa að borða þar.
Og ég hef greinilega ekki misst af miklu síðan ég tók þá ákvörðun og þangað til í dag.
Þeir voru með einhver hádegistilboð, 3 svoleiðis á okkar borð.

Þegar við vorum búnar að bíða í meira en hálftíma eftir matnum, fórum við að grennslast fyrir eftir matnum. Kom í ljós að pöntunin "týndist" í tölvukerfinu, þau ætluðu að ganga frá þessu hið snarasta, og maturinn væri í boði hússins. Það var orðið tæpt á tíma, því mútta átti að fara að mæta í vinnu. En jæja, what the hell, allir sársvangir, þannig að við biðum í kortér í viðbót.
Eftir mat sem var varla þess virði að borða frítt. Allavega ekki minn skammtur. Hefði alveg getað búið þetta til heima hjá mér.

Samt soldið fyndið, að þeir segjast hafa týnt pöntuninni, en samt fengum við nákvæmlega það sem við höfðum pantað áður en allt fór í klessu....
Hmm, allavega hefur þetta ekki týnst langt.

Ég verð oft reið yfir sjónvarpinu. Sérstaklega þegar það er heill "pistill" eða hvað maður segir í Kastljósinu um verð á hlutum sem fólk er að gefa í jólagjöf.
Pælið í því, það er actually til, að fólk sé að gefa jeppa í jólagjöf!
Plasmaskjái upp á 450.000!
Tölvur og með því fyrir allt uppí milljón kall!

Oj, ég er nú svo heppin að mig langar ekkert í jeppa, mér finnst plasmaskjáir ljótir, og hefði margt betra með milljón að gera en að eyða henni allri í eitthvað tölvurugl.

Þetta er sama liðið og segir að það sé ekki til fátækt á Íslandi, kallar "pakk" sem fer í Mæðrastyrksnefnd sníkjudýr, og skilur ekkert í hvað allir eru "öfundsjúkir útí bílaeign þeirra", þegar í rauninni finnst öllu eðlilegu fólki að þau líti út eins og hálfvitar þegar þau keyra um á trukkum sem þarf sérstakt bílpróf til að mega keyra. Og það eru fjölskyldubílarnir þeirra.

Jæja, nóg um það. Ég er farin að gera eitthvað af viti. Spila Bubbleshooter, til dæmis. ;)