Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

10 desember 2005

Minns langar í bíó

Vá, við vorum að horfa á Saw í gærkvöldi...
Að vísu er ég svo óheppin að ég sofna alltaf yfir bíómyndum, sérstaklega ef ég byrja að horfa kl. 1 um nótt. En, ég ætla þokkalega að klára þessa, helst strax annað kvöld, og svo ætlum við að sjá Saw II í bíó um leið og við getum og nennum.
Við erum nottlega alltaf í bíó, fórum síðast á The Day after Tomorrow..!

Svo er það jólamyndin í ár, Narnia! Ég tók sko andköf þegar ég sá á sambioin.is, að það er búið að gera heila mynd um ljónið, nornina og skápinn, sem verður frumsýnd hér 26. desember.
Ég ætla að athuga hvernig tekst að draga makann á svona ævintýramynd, annars fer ég bara sjálf! :p

Og meira um bíó.. Við eigum enn 2 frímiða á barnamynd til að fara með Þann Stutta, hefði verið voða mikið til í að fara á morgun að sjá Litla Kjúllann. Það ku vera býsna fín skemmtun.

Hmm, eitthvað fleira... Bróðir makans er kominn hingað í jólaheimsókn frá Svíþjóð ásamt kærustu sinni, og við eigum víst von á einhverju smáræði matar- og nammikyns, svona til að gefa okkur smjörþefinn af Svíaríki. Nú erum við orðin lasin aftur, okkur langar svo hryllilega út. Eða aftur, höfum alltaf verið veik í að vera þarna úti... En fyrst verður maður að gera sig flottan hér, áður en við förum eitthvað að ybba okkur þarna úti.
Er reyndar helvíti ánægð með Baugsfeðga, þeir eru farnir að selja alveg gæða barnamat, einmitt frá Svíþjóð, í Hagkaupum og Bónus. Þannig að það verður ekkert Gerber ógeð á borðum hér fyrir litla krílið, þegar það mætir.

Og talandi um litla krílið; nú er farið að nota pissublöðruna í Hýsilnum (mér) sem bæði leikfang og boxpúða, þannig að núorðið eru oft rekin upp lág, mjög vandræðaleg vein. Sérstaklega þegar maður situr voða kurteis að afgreiða fólk á kassa.... Bara asnalegt.

Núna er makinn farinn að bíta í eyrað á mér, bið að heilsa í bili...