Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

08 desember 2005

Stóra kona...

Æi, ég er eitthvað svo ólétt í dag...
Fengum okkur búðarpizzu í kvöldmat, og eftir átið ákvað litla krílið greinilega að það væri ágætis hugmynd að leggjast utan í magann minn...
Auðvitað voða gott að leggjast á svona útbelgdan og fínan maga, en ekki fyrir "The Host"...

En það er að mestu liðið hjá.

Sá stutti fór með mér í svona bumbuskoðun, ýkt spenntur. Hef sjaldan séð hann eins amazed og þegar heyrðist í hjartanu slá, honum fannst það alveg geggjað! En svo mældi blessuð ljósan lengdina á bumbunni, eða legbotninn, og hann er orðinn soldið hár. Sem bendir að öllum líkindum til þess að þetta sé stórt barn...! Vei.

OK, ef einhver hefur einhvern tímann að ljóskur séu víst gáfaðar, skal sá hinn sami stilla á Sirkus núna og horfa á eins og 1 mínútu eða svo af Girls Next Door, um gellurnar á Playboy Mansion.
Watch ´em and weep!

Jæja, verð að fara í sturtu. Undirbúa mig fyrir enn einn dag fullan af jólalögum...
Shit, ég verð geðveik á því bráðum, by the way...

Allavega, sí jú leiter.