Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

04 desember 2005

Sunnudagur?

Það er eitthvað við það að sjá pínulitla flugu, skríðandi utaná ískalda og girnilega mjólkurglasinu mínu. Skyndilega langar mig ekkert í meiri mjólk. Eða meira Póló kex.
Ég sem ætlaði að hafa það svo kósý við tölvuna, but what the hey...
Verð komin yfir mestu klígjuna áður en ég veit af.

Ég lagðist í smá jólaþrif hérna í dag. Skil ekkert í mér, eins og ég er vanalega löt um helgar.
Við mæðginin vorum bara heima í rólegheitum í allan dag, og þegar makinn vaknaði eftir að hafa sofið úr sér mestu vinnuþreytuna, var lagst í smá endurskipulag á íbúðinni. Nú erum við orðin svo svöl, að geta bæði lagst í sófa fyrir framan sjónvarpið, komið miklu meira pláss eftir að færa minni sófann þaðan sem hann gerði ekkert gagn, og komin með lítið borð undir þessa fylgihluti með tölvunni sem tókst aldrei að koma neins staðar fyrir. Það þarf ekkert annað en smá samvinnu, folks.

Nú er Majan bara búin að kveikja á 8 kertum, einu gervijólatré, og er að spá í að slökkva á sjónvarpinu... Um leið og Life Begins er búið. ;) Ég er ekkert spennt, neinei.... Bara gaman að hafa birtuna frá sjónvarpinu svo ég sjái breytingarnar betur! *Ehem*

Ég leit hingað inn fyrir nokkrum mínútum síðan, til að sjá hvort ég ætti einhver comment. Viti menn, maður er bara komin með helling af visitors, allavega samkvæmt counternum neðst á síðunni! Ég verð bara að segja að ég bjóst ekki beinlínis við þessu, but thanks. ;)

Ég hef tekið þá ákvörðun að vinna á aðfangadagskvöld.
Mamma er á vakt þá, önnur jólin í röð, og sú sem hefði átt að vera með henni er að reyna að redda sér fríi. Hún er svona fjölskyldudama líka. Þannig að mamma spurði mig hvort ég væri ekki bara til í að taka þetta að mér. Eftir smá umhugsun og rabb við makann, ákvað ég bara að kýla á þetta.
Mér skilst að þetta sé nefnilega voða kósý; fæ að sjálfsögðu að borða þar, hamborgarhrygg og með því, og það eru einhverjir íbúar sem njóta þess í friði að borða í rólegheitunum með okkur, svona þeir sem hafa ekki fjölskyldu til að fara til. Svo er bara kaffi og konfekt.
Vaktin mín er frá 17:30 til 21:30, akkurat þegar svona mest er að gerast á svona fínu kvöldi eins og aðfangadagskvöld er.

Þeir feðgar fara til tengdamömmu að borða, það verður örugglega voðalega fínt. Svo koma þeir bara að sækja mig, sá stutti örugglega voða spenntur að sýna mér hvað hann fékk í jólagjöf, og svo þegar hann er sofnaður getum við hjónin haft svona Litlu-Jól. Kannski bara meira konfekt eða eitthvað. Í fyrra fengum við okkur nú kaffi og koníak þegar stubburinn var lagstur, en það er svona varla að maður kunni við það núna, svona með kúlu og alles. Yrði örugglega ekkert voðalega vinsælt. :/

Jæja, það er komið að pjatthorni Maju. Ætla að fara að lakka á mér tásurnar og lita augabrúnir í andlitinu. Löngu kominn tími á það...

Bið að heilsa í bili.