Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

09 nóvember 2005

Ný tegund af klukki. ;)

Ég var klukkuð á Heiðdísarblogginu hérna einhvern tímann, en nennti aldrei að hlýða því...

En ég ætla að búa til nýtt. ;)

Allir að kommenta, og segja eitthvað sniðugt og sætt um kisuna sína!

1. Það þýðir ekkert að gefa kisanum mínum vatn í skál, hann vælir bara fyrir utan baðherbergið og bíður eftir að við látum renna í sturtubotninn handa honum.

2. Hann þakkar hér um bil alltaf fyrir matinn, ÁÐUR en hann byrjar að borða.

3. Hann lúllar uppí hjá okkur eins og lítið barn á hverri nóttu, eins mikið oní okkur og hann getur.

4. Ef hann mætti ráða, þá væri alltaf heil athöfn bara í að heilsa honum þegar við komum heim úr vinnunni á daginn.

5. Hann verður bara feitari og feitari með hverjum deginum sem líður. ;)

******************Mjá mjá!************************************