Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

11 október 2005

Svöng, svöng og aftur svöng.

Þetta er einn skelfilegur galli við óléttuna; ég bara get ekki borðað mig sadda!

Nú er ég búin að hesthúsa slatta af kornflexi, brauði og mjólk, en það bara gerist ekkert.
Zip.
Ég er enn með hungurverki.

Auðvitað á ég að vera ofsa dugleg og skella mér út í búð og kaupa mér 7 kg af ávöxtum.
En ég bara geri það ekki.

Besides, á eftir að fara út að versla á eftir. Þá fá kannski nokkrir bananar og 2-3 epli að fljóta með í körfuna.

En finnst ykkur þetta ekki spennandi subject?
"Matarvenjur Maju..."

Skellti mér niðrí vinnu áðan með vinnuskýrsluna mína, flokksstjórinn váaði bara þegar hún sá alla yfirvinnuna hjá mér. Hver veit, kannski á maður bara eftir að eiga smá aur um mánaðamótin...? Væri ekki leiðinlegt.

Annars þoli ég ekki fólk sem er vælandi yfir blankheitum, sem er svo ýmist á nýjum bíl, er að kaupa sér íbúð, eða er búið að fara kannski oftar en einu sinni til útlanda í ár. Believe me, maður heyrir sko of mikið af þessu, frá fólkinu sjálfu.

Ég vorkenni ekkert svoleiðis fólki. Það hefur þó eitthvað á milli handanna, bíl eða íbúð, jafnvel bæði, og varla voru þau mjög blönk þegar þau voru að versla ofan í sig fyrir næstu 10 árin í útlöndum..!
Ekki eins og maður geti sagt eitthvað svona fínt sjálfur; búum í alltof lítilli kjallaraíbúð, erum á gömlum bíl sem tengdamamma var að gefa okkur, og erum alveg á hnefanum með að vera að fá okkur þessa nettengingu. Það liggur við að maður skammist sín fyrir það, svo glötuð er staðan.

En bráðum kemur betri tíð, með blóm í haga... Eða snjó. Fer allt eftir hvernig viðrar.

Er einmitt að bíða eftir að það sé hringt í mig út af vinnu. Þori samt eiginlega ekkert að vera of bjartsýn, því það er ekkert víst að þessi dama vilji ráða píu í vinnu sem er bara í einhverja 4 mánuði. Og að verða hnöttótt þar að auki.
Við sjáum bara hvað setur.

Ég þóttist vera eitthvað voða áhugasöm yfir fréttunum í gær út af þessu andsk. Baugsmáli.
Það heppnaðist ekki hjá mér.

Horfði á Jónínu Ben. í Kastljósinu, þessu nýja æðislega, og ég eiginlega bara hálf-vorkenni konustráinu. Ekki bara fyrir allt áreitið sem fjölskyldan hennar hefur orðið fyrir (sem er nú "eðlilegt", þetta eru nú fjölmiðlar..), heldur líka bara fyrir hvernig hún er, einhvern veginn. Ég man ekkert eftir að hafa séð þessa konu í viðtali áður, kannski hefur hún alltaf verið svona taugaveikluð og ómöguleg. Held að hún ætti bara að skella sér til Bahamas á 1. class, sötra kokkteila yfir jólin og reyna að slaka soldið á.
Senda svo reikninginn á Jóhannes Jónsson and son, Peningagötu $100, Moneyland.

Við ættum kannski bara að byrja með smá fundraising fyrir hana. Þó hún hafi nú örugglega alveg efni á þessu sjálf, að þá verður fólk einhvern alltaf meiri fórnarlömb ef það þarf að safna ofan í það pening. Hún notar þá söfnunarféð bara í gjaldeyri, fær sér kannski nýtt ilmvatn eða eitthvað.

Jæja, nú held ég að það sé nóg komið af þessu bulli í mér.
Held ég hafi aldrei komið með neitt á þessum tíma dags áður.

Læt heyra frá mér í kvöld, þá er ég væntanlega búin að heyra eitthvað með þessa vinnu.
...Og Jónína Ben verður búin að hringja og þakka mér fyrir hugulsemina á bak við þessa söfnun mína.