Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

04 október 2005

Ein alveg í ruglinu!

Haha, ég hef greinilega ekkert verið með sjálfri mér þegar ég var að blogga í gær, búin að kveðja og allt og þá fer ég bara að tala um einhver sturtumál..!
Frekar fyndið. ;)

Ég var að vesenast í vinnu- og óvinnumálum í allan dag. Er svona að velta því fyrir mér hvort ég eigi að hætta alveg að vinna og fá einhvern glataðan sjúkradagpening, eða reyna að bæta á mig vinnu svo ég fái allavega eitthvað fæðingarorlof.

Æi, þetta er allt eiginlega of flókið til að ég nenni að fara út í það hér.

Annars var ég að koma úr afmæliskaffi hjá Möggu, gamalli vinkonu minni. Hún á nú bara heima hérna í götunni fyrir ofan, þannig að maður hefur enga afsökun eða getur ekki þóst komast neitt. Hehe, neinei, ekki það að ég hafi ekki nennt að fara, en oft vill maður bara geta sagt "Æi, veistu ég er ekki á bíl", eða "Guð, ég kann ekkert á strætó þangað..!". Bara svona svo maður geti kúrað heima uppí sófa á góðum fíling eftir langan og strangan ekki-vinnudag.

En ég lét nú sjá mig, og það var ágætt. Þrátt fyrir að hafa troðið í mig þremur pylsum hálftíma áður en ég fór úr húsi hjá mér, tókst mér einhvern veginn að smakka svona heitt brauð hjá henni og kex með brie-osti.
Svona er gaman að vera ólétt, get bókstaflega borðað endalaust.
Og gat ég það nú meira að segja fyrir, þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur...!

Haha, ég var einmitt niðrí vinnu í dag á einhverjum starfsmannafundi, og það fóru allir að káfa á maganum á mér og segja hvað ég væri komin með myndarlega kúlu. Það sem enginn veit er að þetta er eiginlega bara maginn á mér!! En nú þarf ég ekkert að vera neitt að draga hann inn, leyfi honum bara að bobbla vel yfir buxnastrenginn. ;)

Maður kemst upp með ýmislegt á meðgöngu, get ég sagt ykkur.

Nú á Makinn afmæli á morgun og við 3ja ára brúðkaupsafmæli. Í tilefni dagsins verð ég nú bara að vinna.... Voða gaman.
Ætlum bara að reyna að gera eitthvað skemmtilegt þegar veskið er svona pínu þyngra.
Til dæmis er gaur að vinna með honum (makanum) sem er í hljómsveit sem var ágætlega þekkt fyrir einhverjum árum síðan. Þótt ég hafi nú bara heyrt nafnið... Anyway, og þetta band er víst að fara að halda Stone Temple Pilots tribute kvöld einhvern tímann á næstu vikum, og þið getið sko hengt ykkur á rassinn með það að við hjónin munum vera þar á fyrsta bekk.
Það er víst búið að setja okkur á einhvern lista og svona, voða gaman. ;)

Heyrið annars, ég held að það sé kominn tími á atvinnuleit.. Eða eitthvað.

Bless í bili, og gleðileg jól.