Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

03 október 2005

Jájá...

Jájá... aftur.

Nú erum við búin að vera með netið í einhverja 4 daga eða hvað það er, og ég hef ekki einu sinni verið að bothera að blogga neitt síðan.
Glötuð pía.

Annars ósköp lítið í gangi, svoleiðis. Var að prófa í dag að afleysast í þvottahúsinu Austurbrún 6, 8 tímar í pure yfirvinnu, of course. Þar er ég semsé að þvo fyrir the elderly, sem þurfa á svoleiðis aðstoð að halda.Fer aftur næsta mánudag, og þá ætla ég að vera búin að kaupa mér svona 76 krossgátublöð til að hafa með mér. Málið er nefnilega, að ég er mestallan tímann sitjandi á stól, bíðandi eftir að þvottavélin og/eða þurrkarinn ljúki sér af. Þá er bara að strauja og brjóta fötin saman, svo aftur að bíða í 3 kortér eftir næstu vél. Svaka stuð.
Að vísu hafði ég eina sænska bók með mér í dag, en það er nú oftast þannig að ef maður er að lesa eitthvað á öðru tungumáli en sínu eigin, þá þarf maður að pása aaaðeins oftar.
Allavega ég.
Kannski er ég bara svona slow, ég veit það ekki.

En þetta var ágætt. Eftir allan ysinn og þysinn síðustu daga var ágætt að fá nokkra klukkutíma bara svona rétt til að vera einn með sjálfum sér.

Svona vinnudagur kostar líka það að ég verð alveg glötuð í skrokknum það sem eftir lifir dags. Kom heim með pjakkinn á meðan Makinn fór út að versla, og þá þurfti ég auðvitað að komast í eitthvað þvotta-uppvasks-bökunarstuð. Svo var reynt að elda þegar Makinn kom heim, endaði reyndar með að ég þurfti að fá hann til að ljúka því verki.
Svo sit ég núna volandi og skil ekkert hvað ég er voðalega aum í lífbeininu, rassinum og mjöðmunum. Algjör auli.

Well well, er hálf föst yfir Most Haunted á Stöð 2 á meðan ég er að skrifa þetta, sjáumst þegar ég er í betri fókus.

Adios.

Nú veit ég ekkert hvort það sjáist eitthvað á hvaða tíma ég er að krassa þetta, en klukkan er allavega rétt að verða 12 á miðnætti, og ég er búin að vera á leiðinni í sturtu í svona 3 tíma eða svo. Rétt upp hendi sem kannast við þetta....
Ég er líka orðin alveg mátulega þreytt á að komast ekkert í baðkar...
Sem er fyndið, því ef við værum með baðkar, þá væri ég orðin vitlaus á að komast ekkert í sturtu.