Allt farið í hundana...
Jæja, ekki nema 9 dagar síðan síðast..!
Við litla fjölskyldan erum búin að vera síðan á miðvikudag í íbúðinni hennar Rósar systur að passa voffana hennar á meðan hún spókar sig í allt of miklu sólinni á Spáni. Í gær sá ég í veðurspá að það væru ekki nema 35° c í Madrid.... Úff, það er meira að segja of heitt fyrir mig. Þau eru að vísu á stað sem heitir La Marina, og eins og nafnið bendir til er það við sjóinn, þannig að þau fá þau einhverja hafgolu með þessu. Hjúkk.
Litlu voffarnir eru æðislegir. ;) Sá eldri, sem er kall, er svo kelinn, að það er bara orðið fáránlegt. Hann leggst meira að segja alltaf uppí sófa hjá þeim stutta og kúrir með höfuðið í kjöltunni á honum þegar verið er að horfa á imbann. Sú yngri er svona pínu meiri dominant týpa, en samt algjört rassgat. Ætti nú bara að skella inn myndum af þeim við tækifæri...
Ég var í fríi í dag. Gaman að fá svona helgarfrí. Ég fór í gær að þrífa fyrir konu sem mamma hefur verið að þrífa fyrir hálfsmánaðarlega síðustu mánuði. Hún er rosalega fín; sjötug, án þess að líta út fyrir það, og algjör hunda- og hestakelling. Just my type. ;)
Hún lánaði mér einmitt bók sem heitir einfaldlega "Why does my dog...?" eftir einhvern algjöran specialista í "hundasálfræði", sem þeir kalla víst Behaviourist á engilsaxnesku.
Mjög gaman að glugga í svona bækur og læra pínu hvernig þessi grey virka....
...Og hvernig maður á að taka á því ef þau virka ekki.... ;)
Svo er það bara vinnan á morgun. Eldhúsið í 4 daga og svo er ég farin í baðið! Yeeesss, hvað það verður ljúft. Mér er nefnilega alltaf jafn illa við að vinna með "yfirmanni", eða ráðskonu í þessu tilviki. Þótt hún sé voða almennileg sjálf, þá finnst mér bara betra að vinna hlutina soldið eftir eigin höfði. Baðið í 6 vikur, svo getur reyndar verið að ég fari í eldhúsið aftur. Fer allt eftir hvort einhver af þessum 3 kellum (þ.á.m. mömmu) ætlar að hætta, sem þær eru reyndar allar að tala um að gera.
Heyrðu já, svo erum við komin með íbúð, sem við flytjum í 1. ágúst! Jibbí!
Ein af deildarstjórunum í vinnunni heyrði mig tala við ráðskonuna um íbúðaleit, og þá kom í ljós að hún er með íbúð á jarðhæðinni hjá sér sem hún og maðurinn hennar eru að leigja út fyrir 55.000.- á mánuði. Þetta er víst mitt á milli þess að vera stúdíó og 2ja herbergja, því þó svo að svefnherbergið sé ekki lokað, þá er það alveg sér krókur.
Svo var Makinn að tala við bróður sinn áðan, sem er einmitt að fara að flytja, og hann fór að tala um að við gætum fengið örba, sófasett og þvottavél þegar hann fer um mánaðamótin til mömmu sinnar. Hefði ekki getað flutt á betri tíma. ;) Þá er það bara ódýr ísskápur og sjónvarp, þá erum við all set. Aldrei gerði ég nú ráð fyrir að við myndum geta búið í "fullbúinni" íbúð þann tíma sem við verðum hérna á landinu, en svona getur þetta nú verið gaman.
Og eitt af því fyrsta sem ég mun vilja kaupa auka þegar einhver smá aur verður til, er safapressa. Við erum með svona græju hérna hjá systu, og þetta er bara að rokka! Ég hef reynt að vera pínu dugleg við gulrótasafa, og í dag og í gær fengum við okkur nýkreistan appelsínu- og greipsafa. Bezt í heimi? Ég held það.
Jæja, er farin að klappa voffa, og reyna að fá hana til að pissa í grasið í staðinn fyrir á gólfið inní stofu.
Bless í bili.