Og að sjálfsögðu er sá stutti orðinn lasinn eftir sjóferðina. Þannig fór um sjóferð þá, haha!
Litla greyið liggur bara í rúminu núna, búinn að vera með hor síðan í morgun og gubbaði meira að segja pínulítið í nótt. :(
En ég er nú samt búin að biðja "maka minn" um að koma og sækja okkur, því ég er bara búin að vera hérna í Breiðholtinu síðan við komum á meðan hann er búinn að vera út um allt... Kíkjum kannski að fá okkur ís eða eitthvað. ;)
Svo er sá stutti kominn með leikskólapláss, var ég kannski búin að segja frá því..? Að öllum líkindum líka komin með afleysinguvinnu í gamla, góða baðinu í 6-8 vikur frá 29. júlí, og svo er víst nóg að gera líka eftir það í afleysingum og allavegana. Er jafnvel að spá í að taka að mér aukavaktir á meðan ég er í baðinu, um helgar og svona, til að fá ennþá meiri aur á litla, óhreyfða reikninginn minn. Oh, hvað það verður gaman! :D
Læt vita í kvöld hvernig dagurinn fór. ;) Until then....