Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

24 mars 2005

Vi åker till Sverige!

Loksins, loksins, loksins!
Þann 6. apríl munum við hjónin ásamt þeim litla burra upp í Norrænu og sigla alla leið til Danmerkur, þaðan keyra til Svíþjóðar. Loksins!
Ég er svo spennt, að það er varla hægt að ímynda sér það. Vorum einmitt að ná okkur í geðveikt fínan Lancer station 4x4 í gær, sá fær að reyna á sig, maður!
Íbúðin hefur beðið eftir okkur úti síðan í febrúar eða eitthvað, þannig að tengdapabbi og frú hafa væntanlega verið að borga leigu fyrir okkur allan þennan tíma.
Við höfum samt ákveðið að láta setja okkur á biðlista fyrir 2-3 herbergja íbúð fljótlega eftir að við komum út, þetta er ekkert nema til bráðabirgða, sko...
En það er samt ágætt, það er ekki beinlínis eins og við eigum það mikið af dóti að við getum fyllt stærri íbúð alveg strax. Ekki alveg strax....
En allavega, þá er bara að bíða eftir að við getum fengið okkur netið úti, við nefnilega erum alveg þokkalega skuldug úti líka. Þannig að það gæti alveg liðið smá tími.