Veikindi.....
Jamm, litli kútur er veikur. Enn og aftur. Hann fékk víst eyrnabólgu fyrir einhverju síðan sem vð svona eiginlega vissum ekki af, og nú eru sprungnar í honum báðar hljóðhimnurnar. Og hann er með bólgna eitla í hálsi. Og hita. Og svo fannst lækninum ekkert æðislegt hljóðið í honum þegar hann hlustaði hann.
Litla greyið, nú liggur hann bara í rúminu, með 39° hita og röflar eitthvað út í loftið. Steinsofandi.
En, svona er lífið. Bráðum verð ég komin með 2 börn, og þá fyrst fer nú að láta reyna á mann fyrir einhverri alvöru.
Lenti í smá rökræðum í dag við gamla vinkonu, sem fengu mig til að líta svolítið í eigin barm.
Oft þegar maður er að reyna að gefa góð ráð, þá er eins og maður sé að því fyrst og fremst til að minna sjálfan sig á hvernig á að tækla hlutina. Þetta er ekki síst hjálp fyrir mann sjálfan, að hlusta á sjálfan sig og heyra þannig hvernig maður getur brugðist við hinum ýmsu, hvað skal segja, vandamálum?
Er ekki alveg nógu djúp til að koma þessu frá mér, en einhverjir skilja sjálfsagt hvað ég meina.
En snúum okkur að fréttum dagsins.
Strætó BS hefur gert einhvern díl við Akranesbæ, þannig að núna gengur strætó 13 sinnum á dag á milli Reykjavíkur og Skagans. Þ.e. 13 ferðir hvora leið.
Fargjaldið verður það sama og í almennum vagni í bænum, semsé 220 krónur.
Rétt upp hendi sem finnst það asnalegt! Fyrir mig að fara t.d heim til mömmu, sem eru einhverjar 5-6 stoppistöðvar, kostar jafn mikið og ef ég væri á leiðinni að heimsækja einhvern sem býr á Kirkjubrautinni á Akranesi (ena götunafnið sem ég man eftir)!
Mér finnst það soldið ósanngjarnt... Þetta er auðvitað frábært fyrir þá sem búa í bænum og eru að vinna á Grundartanga eða eitthvað, en það má nú samt ekki alveg gleyma hinum.
En jæja, Sá Stutti er vaknaður, og vill fá að horfa á Skrímsli hf. Leyfum honum það, þó svo að klukkan sé hálftíu að kvöldi. ;)
Góða nótt.

2 Comments:
At 10:52 f.h.,
Birta said…
Þetta hefði verið vel þegið fyrir ári síðan, hefði sparað manni þvílíkan pening í bensínkostnað. Og rúta þangað kostaði 800 krónur sitthvora leiðina.
En jám, ég skil hvað þú átt við um það sem þú sagðir. Sömuleiðis bara :)
At 2:21 f.h.,
Nafnlaus said…
já mér finnst ekkert asnalegt að þetta sé svona. ekki að ég sé e-ð á leiðinni á akranes en mér finnst þetta samt ekkert ósanngjarnt. ekki fyrr en þeir fara að hækka strætófargjaldið allstaðar til að standa undir kostnaðinum á þessu, en á meðan þeir gera það ekki þá finnst mér þetta bara frábært:)
Skrifa ummæli
<< Home