Maja Solla

Vangaveltur Dagsins

20 desember 2005

Jólin eru að koma...

Jæja, þá fer þetta allt að gerast. Sá stutti fékk jólafötin sín í dag, og það er svona nokkurn veginn það eina sem maður þurfti að stressa sig eitthvað yfir.
Þar sem ég verð að vinna á aðfangadagskvöld og þeir feðgar verða hjá tengdó, þá þarf ég eiginlega ekkert að undirbúa neitt sjálf, svoleiðis.
Hefði reyndar viljað baka eitthvað, en....

Ég man nú að í fyrra byrjaði ég ekki á neinum bakstri fyrr en á Þorláksmessu, þar sem ég og Stubburinn lágum bæði í einhverri hundleiðinlegri pest alla dagana fyrir jól. En það hafðist einhvern veginn, ég náði að hafa eitthvað af cookies með mér í matinn á aðfangadag.

Annars voða lítið að gerast, fyrir utan veikindi hjá einum litlum manni. Sló niður af þessu kvefi sem hann var með í síðustu viku, og í dag og í gær hefur þetta verið í augunum líka, þannig að augun eru alveg límd saman þegar hann vaknar á morgnana. Greyið, hann varð skiljanlega alveg ofsa skelkaður fyrst.
Ég vona samt að ég geti farið með hann í leikskólann í fyrramálið, mér finnst svo óþægilegt að missa svona mikið úr vinnu, sérsaklega svona í þessari madness-viku.

Var að pæla í að skella inn smá leiðindasögu úr leikskólanum sem tengist jólaballi, en ég eiginlega nenni því ekki akkurat núna. Geri það seinna þegar ég er í stuði. Nema þið biðjið voðalega fallega...

En jæja, ætla að fara að skrúbba mig aðeins fyrir kvöldið, heyrumst bara síðar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home